Óska eftir yfirliti yfir óbyggðar atvinnulóðir
Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót vilja fá skýrt yfirlit yfir allar óbyggðar atvinnulóðir í Reykjanesbæ sem hafa verið í úthlutun lengur en í tvö ár, auk lóða sem hafa ekki verið úthlutað eða þar sem gjöld hafa ekki verið greidd.
Þetta kemur fram í bókun sem Guðbergur Reynisson (D) lagði fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. febrúar 2026, þegar fundargerð atvinnu- og hafnarráðs frá 22. janúar var til umræðu. Bókunina undirrituðu Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson og Birgitta Rún Birgisdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Margrét Þórarinsdóttir fyrir Umbót.


