Fréttir

Reykjanesbær verði leiðandi í barnavernd fyrir stærra umdæmi
Föstudagur 6. mars 2026 kl. 09:42

Reykjanesbær verði leiðandi í barnavernd fyrir stærra umdæmi

Viðræður eru hafnar um mögulega samvinnu um stærra umdæmi barnaverndarþjónustu, þar sem Reykjanesbær yrði leiðandi sveitarfélag. Þetta kom fram á fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar 12. febrúar.

Samkvæmt fundargerð óskaði Grindavíkurbær, ásamt framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík, eftir viðræðum um samstarf á sviði barnaverndar. Markmiðið er að skoða hvort unnt sé að sameina krafta sveitarfélaganna í stærra þjónustusvæði, með Reykjanesbæ í forystuhlutverki.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Málið var lagt fram til kynningar á fundinum og liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um fyrirkomulag, umfang eða tímasetningar að svo stöddu.