Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Ný deild Miðflokksins stofnuð í Suðurnesjabæ
Fimmtudagur 5. mars 2026 kl. 11:04

Ný deild Miðflokksins stofnuð í Suðurnesjabæ

Stofnfundur nýrrar deildar Miðflokksins í Suðurnesjabæ var haldinn í gærkvöldi, þann 4. mars 2026. Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide var kjörin formaður hinnar nýju deildar.

Mikill hugur var í fundargestum við stofnun deildarinnar en auk Sigrúnar Hörpu skipa stjórnina þau Bryndís Inga Guðmundsdóttir og Freyr Gunnarsson sem meðstjórnendur. Stofnun deildarinnar markar mikilvægt skref í uppbyggingu flokksins á svæðinu og styrkir bakland hans í Suðurnesjabæ fyrir komandi verkefni, segir í tikkynningu

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Viðstaddir þessi tímamót voru meðal annars Karl Gauti Hjaltason, þingmaður kjördæmisins, og Gunnar Bragi Sveinsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins. Þá tók einnig þátt í fundinum Svana Sigurjónsdóttir, formaður kjördæmafélags Miðflokksins í Suðurkjördæmi.