Mannlíf

Skilinn eftir allslaus í Eyjum
Guðbergur, eða Beggi, með Arnbjörgu Elsu, konu sinni, í fjórhjólatúr.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 1. ágúst 2020 kl. 07:15

Skilinn eftir allslaus í Eyjum

Guðbergur Reynisson, eigandi Cargo flutninga, er alvöru fjórhjólagaur og hefur farið margar ferðir um hálendið í sumar. Hann á magnaða sögu frá Þjóðhátíð í Eyjum.

„Sumarið hefur verið ótrúlega gott miðað við að það er 2020 og allt hefur gengið á afturfótunum síðustu mánuði. Þetta ár hefur auðvitað verið alveg ótrúlegt og það er bara rétt hálfnað,“ segir Guðbergur Reynisson, eigandi Cargo flutninga.

– Hvaða staðir á Íslandi hafa heillað þig?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við fjölskyldan eyðum flestum sumarhelgum á Flúðum í algerri sumarsælu, fórum þó eina fótboltaferð á Sauðárkrók í júní og svo má segja að þetta sumar einkennist af fjallaferðum á fjórhjólum sem við Elsa reynum að gera sem mest af allt árið.

Í júní skelltum við okkur nokkrir saman norður Sprengisand á fjórhjólum og í júlí fórum við svo í fjölmennustu fjórhjólaferð Íslandssögunnar þegar hópur þrjátíu og eins Suðurnesjamanna keyrðu um 600 kílómetra frá Flúðum inn Hrunamannaafrétt, norður Sprengisand, vestur í Vesturdal í Skagafirði og í Varmahlíð. Þaðan norður fyrir Blöndulón og suður í Hveravelli. Svo var á fjórða degi ekið í Kerlingafjöll og loks aftur á Flúðir. Landið okkar hefur upp á svo margt að bjóða að upplifunin, sérstaklega fyrir þá sem eru að koma í fyrsta sinn inn á hálendið, verður yfirþyrmandi, alveg sama hvernig veður er.

Mér finnst alltaf svo ótrúlegt hversu margir hafa aldrei komið inn á hálendi Íslands, ég bara skil það ekki, ég gæti til dæmis alveg búið í Eyvindarkofaveri sunnan Hofsjökuls.

Ég gæti líka búið á Hrunamannafrétti, Laugafelli Sprengisandi, Þorljótsstöðum  i Skagafirði, Kerlingafjöllum, Flúðum, Lambhagaafrétti og fleiri fleiri stöðum sem við fengum að njóta í ferðinni.

Næsta ferð er áætluð í enda ágústmánaðar en þá munu um 30 fjórhjólamenn taka Fjallabak á tveimur dögum. Við erum rúmlega 60 í ferðahópnum sem kallar sig Melrakkar en melrakkinn, eða refurinn, er einmitt langfyrsti landnemi Íslands.

– Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina?

Um verslunarmannahelgina verðum við fjölskyldan eins og síðustu ár á Flúðum en þessi verslunarmannahelgi verður um allt land með nýju sniði vegna Covid-19, nýjar reglur og fjöldatakmarkanir breyta öllu og verðum við að hjálpast að við að fara eftir settum reglum.

– Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin þín?

Það eru margar verslunarmannahelgar ofarlega í minni þegar maður hugsar til baka, eins og fyrsta skiptið fimmtán ára í Húsafelli með frændsystkynum mínum en ég er enn bundinn þagnareið um þá ferð. Eða fyrsta og eina skiptið mitt í Eyjum með félögunum ‘93, þá flugum við til Eyja á sunnudegi og þeir skildu mig eftir í Vestmannaeyjum og þurfti ég að taka Herjólf til Þorlákshafnar, rútu á Umferðarmiðstöðina, með SBK til Keflavíkur og húkka far út í Garð, allt út á krít þar sem strákarnir tóku jakkann, veskið og flugmiðann með sér heim um nóttina. Það voru engir farsímar eða kortin í símanum þá sko.

– Hvað finnst þér mikilvægt að hafa um verslunarmannahelgina?

Það er alveg hægt að hafa skemmtilega verslunarmannahelgi þó engin sé skipulögð dagskráin, bara hafa það mikilvægasta með – fjölskylduna.

Guðbergur í hópi fjórhjólavina.

Íslandsfegurð í fjórhjólaferð.