Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Rúm og húsgögn í herbergið og hljómflutningsgræjur fyrir fermingarpeningana
Sverrir í fermingarmyndatöku og svo í dag. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 14. mars 2026 kl. 06:00

Rúm og húsgögn í herbergið og hljómflutningsgræjur fyrir fermingarpeningana

„Ég man vel eftir fermingardeginum mínum. Hann var góður og eftirminnilegur,“ segir Sverrir Gunnarsson, bílasali í Bílakjarnanum á Fitjum en hann fermdist 8. apríl 1985.

Veislan var á heimili Sverris sem þá bjó í Garðabæ. Fermingin var í Garðakirkju í Garðabæ og var boðið upp á kalt borð og kökuveislu. Séra Bragi Friðriksson fermdi Sverri og jafnaldra hans en mánuðina á undan sóttu þeir fermingarfræðslu í Kirkjuhvoli, safnaðarheimli Garðakirkju.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Í flottum jakkafötum

„Ég var í flottum jakkafötum en man að ég hafði smá áhyggjur af sveipnum í hárinu en lét það ekki á mig fá. Ég er alla vega ekki með neinn sveip í dag,“ segir Sverrir og hlær þegar hann rifjar þetta upp.

Gjafirnar voru margar, bæði peningar og hlutir, m.a. nokkrar bækur. „Já, ég fékk Pilt og stúlku og ljósmyndabók sem hefði nú mátt nýtast betur þegar ég varð eldri. Þá fékk ég rúm og húsgögn í herbergið mitt. Það var mjög algengt á þessum tíma. Svo notaði ég hluta af peningagjöfunum til að kaupa mér hljómflutningsgræjur í herbergið.“

Virkur í KFUM

Sverrir og nokkrir vina hans voru virkir í KFUM starfinu. „Við sóttum fermingarfræðsluna sem var fín hjá séra Braga. Þetta var bara stór dagur í lífi manns á þessum tíma. Það kom aldrei neitt annað til greina en að fermast. Ganga í fullorðinna manna tölu, staðfesta skírnina og kristna trú. Ég er sjálfur þannig í dag. Mætti auðvitað vera duglegri að sækja kirkju en ég fer þó af og til þangað sem mér finnst gott,“ segir Sverrir sem bjó framyfir unglingsár í Garðabæ og Akureyri þangað til hann flutti til Keflavíkur. Afi hans, Sverrir Júlíusson var þaðan og þeir nafnar voru alla tíð miklir mátar og bílasalinn er gallharður Suðurnesjamaður í dag.

...Þetta var bara stór dagur í lífi manns á þessum tíma. Það kom aldrei neitt annað til greina en að fermast. Ganga í fullorðinna manna tölu, staðfesta skírnina og kristna trú. Ég er sjálfur þannig í dag ...