Pizzan
Pizzan

Mannlíf

Félagarnir hittust til að  fara yfir peningagjafirnar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 14. mars 2026 kl. 06:16

Félagarnir hittust til að fara yfir peningagjafirnar

Jón Halldór Eðvaldsson fékk þrjú Parker pennasett í fermingargjöf og segir fermingaráranginn 1989 hafa verið með þeim bestu .

Jón Halldór Eðvaldsson, bílasali hjá Öskju í Reykjanesbæ, segir að hann hafi verið í verðlaunaárganginum 1975 í Keflavík. „Þetta var magnaður árgangur. Það er hægt að miða hann við bestu rauðvín,“ segir Jón Halldór, Jonni, þegar hann rifjar upp hin merku tímamót, ferminguna.

„Ég fermdist 19. mars árið 1989 í Keflavíkurkirkju. Séra Ólafur Oddur Jónsson var prestur og dagurinn var góður. Það var bjart veður en kalt og hávaðarok þegar leið á daginn. Ég man þegar við peyjarnir gengum í kirtlunum inn í kirkju að það var hörku blástur úti en það var allt í góðu. Veislan var haldin í Kirkjulundi, félagsheimili Keflavíkurkirkju og var næsta hús við hana. Foreldar mínir útbjuggu heljarinnar kökuveislu og ef ég man rétt kom Raggi bakari frændi eitthvað að bakstrinum. Hann var jú þekktasti bakari bæjarins og bróðir pabba. Þannig að það gekk allt mjög vel,“ segir Jón Halldór en bætir við að hann muni ekki nógu mikið frá fermingunni. „Ég bara skil þetta ekki. Það er fullt sem ég man ekki eftir frá æskunni. Það er eins og það hafi ekki verið gert ráð fyrir alvöru minningarplássi í mínu höfði,“ segir okkar maður og skellir upp úr.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hvað með hárgreiðslu eða myndatöku á fermingardeginum?

„Ég greiddi mér nú bara sjálfur og hafði litlar áhyggjur af því en ég fór ekki í myndatöku.“

Þú hefur fengið eitthvað af gjöfum?

„Já, ég fékk fullt af gjöfum, m.a. þrjú Parker-pennasett sem nýttust ekki nógu vel í framtíð unga fermingardrengsins. Svo fékk ég slatta af peningum. Við fermingarfélagarnir höfðum mestan áhuga á að vita hvað við fengum mikið og ég man alla vega að við hittumst að kvöldi fermingardagsins einhvers staðar og fórum yfir það hvað við fengum af aurum. Þá var símaæðið ekki komið til sögunar og því ekki í boði að senda einhver skilaboð í farsíma á hópinn. Þetta var eins og fólk gerði í gamla daga, - hittist!“

Geggjuð fermingarföt

Jonni segist helst ekki vilja upplýsa um fermingarfötin. „Þetta var svakalegt. Grá jakkaföt og jakkinn svona mittis. Mér fannst þetta geggjuð föt en ég veit ekki hvort þau myndu slá í gegn í dag.“

Aðspurður um fermingarfræðsluna segir Jón að hún hafi gengið vel fyrir sig í Kirkjulundi undir stjórn séra Ólafs Odds. „Maður tók eitthvað með sér úr henni og reyndi að innbyrða einhverja visku. Það var jú gulrót á endanum, sjálf fermingarveislan, svo það var nú betra að læra eitthvað. Ég var annars virkur í kirkjulegu starfi KFUM eins og nokkuð margir strákar voru á þessum árum. Ég fór þó ekki nema einu sinni í Vatnaskóg, þá ekki í sumarbúðir sem voru vinsælar, heldur fór ég í helgarferð um vetur en man ekki út af hverju. Ég þyrfti kannski að heyra í Gumma Kalla presti um það en hann var einn af eldri strákunum sem voru í starfinu.“

Fór með bænirnar

Jón segir að hann hafi gist talsvert hjá ömmu sinni og afa þegar hann var strákur og Helga amma hans hafi verið trúuð og þegar hann fór að sofa hjá henni fór hann alltaf með bænirnar. „Ég get ekki sagt að ég sé sérstaklega trúaður í dag, ég er þó í Þjóðkirkjunni og er bara með mína barnatrú en er ekki duglegur að sækja kirkju.“

Jonni segist líklega ekki vera á leið í fermingu í vor. Hann muni missa af fermingu yngra barns bróður hans en aðspurður segir hann að hann hafi fermt tvö börn sín og það hafi gengið vel. „Mér fannst það ganga vel og í raun var svipaður andi yfir þeim athöfnum og veislum eins og þegar ég fermdist.“

...Við hittumst að kvöldi fermingardagsins og fórum yfir það hvað við fengum af aurum. Þá var símaæðið ekki komið til sögunar og því ekki í boði að senda einhver skilaboð í farsíma á hópinn. Þetta var eins og fólk gerði í gamla daga, - hittist!...