Pizzan
Pizzan

Mannlíf

Mátulega stórt en mjög öflugt samfélag - Jóna er FKA kona mánaðarins
Laugardagur 14. mars 2026 kl. 06:42

Mátulega stórt en mjög öflugt samfélag - Jóna er FKA kona mánaðarins

FKA kona mánðarins:
Jóna Birna Ragnarsdóttir, 47 ára

Menntun:

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sjóntækjafræðingur með meistaragráðu í klinískum augnsjúkdómum og aðra meistaragráðu í sjónþjálfun og samsjón augna.

Við hvað starfar þú og hvar?

Ég er eigandi Reykjanes Optikk sem er ein glæsilegasta gleraugnabúð landsins, þó ég segi sjálf frá. Auk daglegs rekstrar er mitt aðalstarf sjóntækjafræðingur.

Hver eru helstu verkefnin?

Helstu verkefnin eru að mæla sjón, afgreiða og fullvinna gleraugu. Önnur verkefni sem ég geri með aðstoð starfsfólks míns eru almenn markaðsstörf og innkaup á vöru.

Hvað er það sem gerir fyrirtækið þitt einstakt?

Það sem gerir Reykjanes Optikk einstakt er starfsfólkið mitt og hvernig það mætir viðskiptavinum á hverjum degi með mikilli þjónustulund. Ég tel að lykillinn að farsælum rekstri sé starfsfólkið, sem ég er ótrúlega lánsöm með. Andrúmsloftið sem fyrirtækjamenning okkar hefur náð að skapa er áþreifanlega ljúft og ég trúi því að allir sem leita til okkar finni það.

Er eitthvað áhugavert sem þú ert sjálf að gera?

Mér finnst starfið mitt sem sjóntækjafræðingur mjög áhugavert. Einna helst finnst mér skemmtilegt að uppgötva eitthvað sem varðar augnheilsu og geta hjálpað fólki. Það er gaman þegar fólk kemur til mín með vandamál sem fyrir nokkrum árum hefði frekar leitt til augnlæknis. Ég lít á það sem ákveðið traust sem ég hef byggt upp í nærsamfélaginu og það þykir mér vænt um. Fyrir utan vinnu gegni ég formennsku í Félagi íslenskra sjóntækjafræðinga. Við erum að vinna að því að fá öll réttindi sjóntækjafræðinga viðurkennd frá Norðurlöndunum. Því miður gengur sú vinna hægt en hún mjakast áfram.

Hver er sagan þín?

Í stuttu máli er ferillinn minn: nám í Noregi, viðbótarnám og meistaragráða áður en við fluttum heim árið 2005. Annarri meistaragráðu lauk 2016. Ég opnaði eigin gleraugnaverslun 2022 á Aðaltorgi. Ég hef verið dugleg að sækja fagráðstefnur í mínu fagi, sérstaklega til Noregs þar sem þeir eru fremstir á Norðurlöndunum. Í fyrra tók ég endurmenntunarkúrs innan augnheilsu og um augnþurrk. Síðan þá hef ég markvisst hjálpað þeim sem koma til mín í sjónmælingu. Þetta er ansi fjölbreytt starf ef maður hefur áhuga. Ég er alls ekki hætt að endurmennta mig og næsti kúrs verður spennandi – meira um það síðar.

Hversu lengi hefur þú búið á Suðurnesjum?

Ég er fædd og uppalin í Keflavík. Ég hef alltaf búið hér nema í sex ár í Noregi þegar ég var að mennta mig.

Hverjir eru kostir þess að búa á Suðurnesjum?

Kostir þess að búa á Suðurnesjum eru án efa að hér er mátulega stórt en samt mjög öflugt samfélag, stutt í alla þjónustu og passlega langt til Reykjavíkur. Ég lít á það sem kost að búa og vinna í mínum heimabæ.

Hvernig líst þér á félagið okkar, FKA Suðurnes?

FKA Suðurnes er öflugt félag þar sem hægt er að sækja um styrk fyrir konur í alls konar verkefnum. Mér finnst mikilvægt að konur á landsbyggðinni eigi athvarf í þessum félagsskap. Konur eru konum bestar og það á vel við að mínu mati.

Hvað varð til þess að þú skráðir þig í FKA?

Ég skráði mig í FKA til að styrkja tengslanetið og ætlaði að nýta mér þekkinguna frá þessum frábæru konum, sem mætti gera enn meira af. Eitt er víst að þar liggur mikil reynsla og þekking í alls konar störfum.

Hvað finnst þér FKA gera fyrir þig?

Ég fylgist vel með FKA og þeirra frábæru starfi. Óendanlega mikið er í boði, bæði fyrir þær sem vilja gera sér glaðan dag og fyrir þær sem vilja auka kunnáttu á hinum ýmsu vettvöngum. Ég er aðeins að lenda í því að komast ekki á viðburði vegna óhentugrar tímasetningar; rekstur minn lokar kl. 18 og það er yfirleitt of seint fyrir viðburði. Mig langar að auka markaðssetningu á samfélagsmiðlum og það er klárlega eitthvað sem ég hefði getað sótt hjá FKA.

Markmið með verkefninu „Kona mánaðarins í FKA Suðurnes“ er að vekja athygli á FKA konum í atvinnulífinu á Suðurnesjum, fyrirtækjunum þeirra eða verkefnunum sem þær sinna og sýna hversu megnugar og magnaðar þær eru. Birting viðtala er samstarf FKA Suðurnes og Víkurfrétta.