Masterklassi í óperusöng um helgina - tónleikar á sunnudag
Óperustúdíó Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verður með Masterklassa í óperusöng fyrir nemendur óperustúdíósins í Stapa laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. mars n.k. Leiðbeinandi verður óperusöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir sem gerir nú garðinn frægan hér heima og erlendis. Hún var valin ungstirni óperuheimsins árið 2024 á Alþjóðlegu óperuverðlaununum í Munchen.
Arnheiður er nú fastráðinn einsöngvari við þjóðaróperuna í Prag. Hún söng eftirminnilega á Galatónleikum Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Stapa haustið 2024 og það er mikill fengur að fá hana aftur til liðs við okkur.
Dagskrá sunnudagsins endar svo með glæsilegum óperutónleikum í Stapa kl.16:00 þar sem þátttakendur masterklassans koma fram og hver veit nema Arnheiður taki lagið líka. Það verður frítt inn á tónleikana og allir velkomnir. Gengið er inn um inngang Stapa. Hins vegar verða frjáls framlög vel þegin, en þau munu renna upp í kostnað við næstu uppfærslu Óperustúdíósins.
Um er að ræða gamanóperuna Gianni Schicchi eftir Giacomo Puccini sem verður frumsýnd föstudaginn 15. maí n.k. í Stapa. Óperan verður flutt með hljómsveit, leikmynd og öllu tilheyrandi og öll stærstu hlutverk eru í höndum okkar fremstu söngvara af Suðurnesja- og höfuðborgarsvæðinu, segir í tilkynningu.






