Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Maðurinn sem elskar tónlist sýnd í Hljómahöll
Þriðjudagur 10. mars 2026 kl. 09:46

Maðurinn sem elskar tónlist sýnd í Hljómahöll

Heimildarmyndin Maðurinn sem elskar tónlist sem er um tónlistarmanninn Þóri Baldursson úr Keflavík verður sýnd 28. mars kl.20 í Bergi í Hljómahöll. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Myndin var frumsýnd fyrr í vetur í Bíó Paradís. 

Myndin fjallar um ævi og störf tónlistarmannsins. Á sjötíu ára tónlistarferli hefur Þórir unnið með mörgum þekktustu tónlistarmönnum Íslands en líka erlendum stórstjörnum á borð við Elton John, ABBA, Rolling Stones, Donnu Summer og Grace Jones.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fylgst er með Þóri frá því hann var barn í Keflavík þar sem hann fylgdi föður sínum tíu ára gamall á dansleiki og lék undir á píanó. Áhorfendur sjá þegar Þórir gekk í sína fyrstu hljómsveit tólf ára og varð virkur í tónlistarsenunni. Í byrjun áttunda áratugarins fór Þórir í mánaðarlanga vinnuferð til Finnlands og endaði á að starfa erlendis næstu árin, á Norðurlöndunum, í Sviss, Þýskalandi og loks í Bandaríkjunum.

Þórir er 81 ára gamall í dag og er að hluta til sestur í helgan stein. Hann gerir við gömul Hammond orgelhljóðfæri í frítíma sínum ásamt því að vera virkur í tónlistarsenunni. Hlutverk hans er að ferðast í gegnum heimildamyndina og fara á kunnuglega staði, þar sem að hljóð framtíðartónlistarinnar „DISCO“ átti sér stað fyrir tæpum fimmtíu árum.