Public deli
Public deli

Mannlíf

Íslandsmyndir Jóns og félaga í nýrri ljósmyndabók
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 6. febrúar 2022 kl. 08:07

Íslandsmyndir Jóns og félaga í nýrri ljósmyndabók

Keflvíkingurinn Jón Sveinsson stýrir Iceland The Photographer’s Paradise með 66.000 meðlimum.

Iceland The Photographer’s Paradise er nafn veglegrar ljósmyndabókar sem er að koma út um þessar mundir. Það er Keflvíkingurinn Jón Sveinsson sem á veg og vanda af bókinni í samstarfi við Forlagið. Jón hefur í um áratug farið fyrir hópi áhugaljósmyndara á Facebook. Þar er hópur sem ber nafn bókarinnar, Iceland The Photographer’s Paradise, og meðlimir eru 66.000 talsins. Reglan er að aðeins séu birtar myndir frá Íslandi.

Stýrir Facebook-síðu með mörgum virkum ljósmyndurum

„Forlagið hafði samband við mig áður en Covid-faraldurinn skall á og spurði hvort það væri ekki áhugi á að búa til bók byggða á Facebook-síðunni þar sem ég er með marga mjög virka ljósmyndara. Á þeim tíma voru meðlimir síðunnar að setja upp undir fimmtíu nýjar myndir á dag en það hefur aðeins dregið úr virkninni í faraldrinum þar sem erlendir ljósmyndarar hafa ekki verið að komast til landsins að mynda. Síðan byggir á samvinnu við ljósmyndarana. Þegar Forlagið hafði ákveðið að gefa út bókina deildi ég því með ljósmyndurum á síðunni og bauð þeim þátttöku. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og ég fékk sendar um 4.000 ljósmyndir,“ segir Jón um tilurð bókarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Jón segir að myndirnar hafi verið misjafnar að gæðum en hann hafi farið í gegnum hverja einustu mynd og skar fjöldann úr 4.000 niður í 500 myndir sem voru sendar til útgáfunnar. Þar var haldið áfram að vinna úr myndunum með tilliti til lita- og prentgæða.

Bókin á bið í Covid

Bókin var svo gott sem tilbúin þegar Covid-faraldurinn brast á og þá var ákveðið að bíða með útgáfu bókarinnar þar til ferðamannaiðnaðurinn tæki við sér að nýju. „Það eru aðallega ferðamenn sem kaupa svona bækur,“ segir Jón. Frestun útgáfunnar opnaði þá möguleika á nýjum myndum og þannig náði eldgosið í Fagradalsfjalli inn á síður bókarinnar.

Í bókinni eru eitt hundrað og tuttugu ljósmyndir en ljósmyndararnir eru um áttatíu talsins. Söluhagnaði bókarinnar verðu svo skipt jafnt á ljósmyndir bókarinnar. Hver ljósmynd er einn hlutur, þannig af ef ljósmyndari á fjórar myndir fær hann greidda fjóra hluti.

Vonandi fyrsta bókin af nokkrum

Jón vonast til að bókin Iceland The Photographer’s Paradise verði fyrsta af nokkrum sem byggðar eru upp með þessum hætti. Hann sér fyrir sér fjórar bækur fyrir árstíðir á Íslandi, eina bók um hálendið og svo lokabókina sem er það besta af því besta.

Útgáfa ljósmyndabókar með þessum hætti gefur ljósmyndurum tækifæri til að fá mynd eftir sig á prenti og geta barið sér á brjóst fyrir það það tækifæri sem er að eiga mynd í bók.

Ljósmyndahópurinn á Facebook, Iceland The Photo-grapher’s Paradise, er ein af stærstu íslensku síðunum á Facebook þar sem þátttakendur eru mjög virkir í því að setja inn myndir og tjá sig í athugasemdum um innsendar myndir. Síðan er sett upp sem hópur og þarf að sækja um aðild. Jón ritstýrir síðunni og reynir eftir bestu getu að halda aftur af mönnum og halda friðinn milli manna. Þá er tekið á því þegar sett eru inn innlegg sem eru augljós sem markaðssetning. Þá leggur Jón mikið upp úr kurteisi síðumeðlima í garð hvers annars. Sama hversu góðir ljósmyndarar menn eru, eða ef þeir eru ruddar við aðra, þá er þeim úthýst af síðunni.

Áhugi á myndforminu

Jón segist alltaf haft áhuga á myndinni sem formi. Hann átti filmuvél í gamla daga. Hann eignaðist Canon F-1 á sínum tíma og myndaði mikið. Þeirri vél var stolið af honum og það þýddi að hann hafði ekki ráð á að kaupa sér nýja vél. Jón segist hafa smitast af ljósmyndaáhuga á sínum tíma af Friðþjófi Helgasyni, ljósmyndara og kvikmyndatökumanni, sem er góður vinur hans. Sjálfur segist Jón hafa verið að fást við málverk og teikningar en alltaf haft áhuga á myndinni í öllum listformum.

Jón bjó í Svíþjóð og gekk í gegnum skilnað árið 2005. Þá kom hann heim til Íslands og gerðist leigubílstjóri.

„Leigubílstjórar vinna lengi og mikið, sex daga vikunnar, og ég fór að finna fyrir því að ég var að brenna út í vinnunni og fannst hún leiðinleg. Ég kvartaði um þetta við vinkonu mína, Gróu Hreinsdóttur, sem þá var tónlistarkennari norður í Aðaldal. Hún sagði mér bara að koma norður til sín og vera eins lengi og ég vildi á meðan ég væri að hvíla mig á leigubílaakstrinum. Ég fór norður í átta eða níu daga og slakaði vel á. Gróa réri að því öllum árum að kveikja aftur í listamanninum í mér.

„Nonni, áttu dollara?“

Ég var m.a. dansari í fjórtán ár og dansaði í Þjóðleikhúsinu, Iðnó og Norræna húsinu. Ég söng líka og var m.a. í Jesus Christ Superstar. Ég var farinn að reykja þannig að ekki gat ég sungið og ég var orðinn of feitur til að geta dansað. Gróa sagði mér að fara að teikna eða mála. Flestir vita hvernig það er að endurvekja einhvern þátt í lífi sínu með hliðsjón af því að fá borgað fyrir það.

Að endanum spyr Gróa mig út í ljósmyndunina en ég tek dræmt í allar þessar hugmyndir. Sex vikum eftir að ég er farinn heim aftur og byrjaður að vinna hringir Gróa í mig og spyr mig að því hvort ég eigi dollara. „Nonni, áttu dollara?“ spurði hún. Sem leigubílstjóri átti ég eitthvað af dollurum. Hún sagðist vera á leiðinni til Orlando í Bandaríkjunum og ætlaði að kaupa fyrir mig myndavél.

Hún keypti vélina, Nikon D-80 með 17–55 mm og 55–200 mm linsum. Ég tek upp á því að vera alltaf með myndavélina í bílnum. Ég er oftast að vinna á nóttunni og þetta sumar var alveg dýrðlegt upp á veðurblíðu að gera með sólsetri og sólarupprás. Það var svona veðrátta í fimm vikur. Ég hafði keypt mér 70–300 mm linsu fyrir FX vél sem gerði linsuna að 400 mm linsu og tók margar myndir af sólsetrinu og sólarupprásinni.

Féll fyrir ljósmyndabakteríunni

Þetta fangar mig gjörsamlega og stuttu síðar segir bílstjóri við mig að ég þurfi að sýna þessar myndir. Það sé ekki nóg að sýna bara vinnufélögum myndirnar. Hann hjálpaði mér að setja upp síðu á Facebook og ég setti inn myndir á hverjum degi. Ég fékk hól fyrir mínar myndir og þá fór ég fljótlega út í það að gera síðu þar sem fleiri en ég gætu sett inn myndir. Hún hefur svo vaxið jafnt og þétt síðan þá og meðlimum fjölgað.“

Eignast marga góða vini í gegnum ljósmyndahópinn

Jón segist hafa eignast marga vini í gegnum síðuna og þegar hann átti afmæli á aðfangadag fékk hann 2.300 kveðjur frá meðlimum síðunnar.

Jón á von á því að síðan á Face-book haldi áfram að vaxa og nú sé von á því að ferðamönnum fari að fjölga á ný og um leið ljósmyndurum sem koma til að taka Íslandsmyndir. „Þá verður síðan vonandi stærri og myndum fjölgar sem er grunnur að næstu bók,“ segir Jón Sveinsson áhugaljósmyndari að endingu.