Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Hjónin Elín  og Sverrir eru  Grindvíkingar ársins
Hjónin Elín Þorsteinsdóttir og Sverrir Vilbergsson eru Grindvíkingar ársins. VF-myndir/hilmarbragi.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 10. janúar 2020 kl. 09:38

Hjónin Elín og Sverrir eru Grindvíkingar ársins

Hjónin Elín Þorsteinsdóttir og Sverrir Vilbergsson hafa verið valin Grindvíkingar ársins 2019 fyrir óeigingjarnt starf í þágu eldri íbúa Grindavíkur. Viðurkenninguna fengu þau formlega afhenta á þrettándagleði í Grindavík á mánudagskvöldið.

Tilgangurinn með nafnbótinni Grindvíkingur ársins er að þakka íbúum í Grindavík fyrir þeirra framlag til þess að gera góðan bæ betri, m.a. með fyrirmyndar háttsemi eða atferli. Til greina koma þeir sem unnið hafa óeigingjarnt starf á undanförnum árum og haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt, segir á vef Grindavíkurbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hérna má sjá umsagnir um hjónin:

Í hverri viku mætir Ella og gefur fólkinu í Víðihlíð dekur, handsnyrtingu, nudd, vax og naglalökkun. Þá heldur Ella utan um útskurðinn og tekur á móti nýjum og gömlum félögum með opnum örmum. Ella sér einnig um kortagerðina í félagsstarfinu.

Sverrir hefur einnig verið duglegur að gefa af sér til eldri borgara en ásamt því að mæta og lesa í Miðgarði fyrir fólkið þar þá hefur hann einnig séð um að að lesa jólasögur á aðventunni og lesið upp tölur í bingói undanfarin ár. Sverrir  var í stjórn Félags eldri borgara hér áður.

Bæði koma Ella og Sverrir mikið í dagþjálfunina og spjalla við fólkið í Víðihlíð. Þau eru ávallt boðin og búin til að aðstoða ef þau eru beðin um það.

Þessi heiðurshjón gefa bæði mikið af sér og vilja öllum vel. Þau taka ekkert fyrir það sem þau eru að gera annað en ánægjuna.

Fjöldi tilnefninga bárust um Grindvíking ársins en valnefnd fer yfir tilnefningarnar og var hún sammála um að Elín og Sverrir ættu þessa heiðursnafnbót skilið.

Þrettándinn í Grindavík 2020