Bilakjarninn
Bilakjarninn

Mannlíf

Göngumessa í Grindavík gekk vel
Pétur Pálsson og sr. Elínborg Gísladóttir.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 30. júní 2025 kl. 10:29

Göngumessa í Grindavík gekk vel

Pétur Páls í Vísi var leiðsögumaður og fræddi gesti

Sumarmessur á Suðurnesjum er skemmtilegur viðburður sem hefur verið í gangi í öllum kirkjum Suðurnesja undanfarin ár. Í ár var byrjað í Keflavíkurkirkju á Uppstigninardag, 29. maí og verður síðasta sumarmessan haldin í Kirkjuvogskirkju í Höfnum í Höfnum 31. ágúst.
Það mætti kalla hverja sumarmessu, göngumessu en alltaf er tekinn göngutúr um umhverfið, oftar en ekki leikur hljóðfæraleikari á sitt hljóðfæri og eins slæst einhver sögufróður með í för.
Í gær var haldin sumar- og göngumessa í Grindavíkurkirkju. Sóknarpresturinn, sr. Elínborg Gísladóttir, leiddi messuna og fékk Pétur Pálsson, útgerðarmann kenndan við Vísi, sér til aðstoðar en bæði lék Pétur á gítar og leiddi söng inni í Grindavíkurkirkju, fræddi svo gesti um sögu Grindavíkur í göngutúr og kom inn á jarðhræringarnar í bænum undanfarin ár og rifjaði upp jarðskjálfta þegar hann var yngri.

Pétur fékk Svanhvíti systur sína, dæturnar Ólöfu og Margréti, og Eirík Dagbjartsson, í kórinn með honum og sr. Elínborgu.

Pétur var strax til í að aðstoða sr. Elínborgu þegar hann fékk beiðnina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Ég hafði gaman af þessu og var strax til í þetta þegar Elínborg bað mig. Ég þekki þessa sögu mjög vel og vissi nokkurn veginn hvert ég myndi ganga með fólkinu, hvar ég myndi stoppa og segja sögur. Ég fékk nokkuð frjálsar hendur með hvernig ég myndi hafa þetta og verð að segja að ég hafði mjög gaman að þessu, ég hef ekki áður verið í hlutverki leiðsögumanns og hver veit nema ég endurtaki einhvern tíma leikinn,“ sagði Pétur.

Elínborg var strax með Pétur í huga.

„Ég þóttist vita að Pétur yrði strax til, bæði er hann mjög fróður um sögu Grindavíkur og þessar jarðhræringar að undanförnu, og svo kann að spila á gítar og gat spilað þá sálma sem ég vildi að yrðu sungnir. Hann fékk dætur sínar og systur ásamt öðrum með sér í kórinn og allir sungu saman. Þetta er mjög skemmtileg hefð sem búin er að myndast hér á Suðurnesjum og var ég mjög ánægð með mætinguna hér í kvöld. Ég þóttist vita að margir utan Grindavíkur, þ.e. fólk sem er ekki frá Grindavík, myndu mæta og það kom á daginn. Ég hvet allt Suðurnesjafólk og aðra til að mæta á þessar sumarmessur. Það er fátt betra en að ganga um á góðu sumarkvöldi í góðum félagsskap, syngja saman lög og hugleiða,“ sagði Elínborg að lokum.

Þrjú myndbönd frá kvöldinu eru í spilaranum.

Pétur Páls með sögustund: Söngur í lokin í Grindavíkurkirkju: