Mánudagur 23. júní 2025 kl. 13:45

Fyrsta svæðisbundna farsældarráðið stofnað á Suðurnesjum

Stórum áfanga var náð á Suðurnesjum í dag þegar Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Það er stofnað á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og samninga mennta- og barnamálaráðuneytisins við landshlutasamtök sveitarfélaga. Farsældarráð er vettvangur fyrir ólíka aðila til að vinna saman í hverjum og einum landshluta að því að veita börnum og foreldrum aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, án hindrana.

Farsældarráði Suðurnesja er ætlað að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Þetta felur meðal annars í sér að styrkja samstarf, tryggja jöfn tækifæri barna til þátttöku, náms og félagslegrar virkni þvert á kerfi. Einnig er lögð áhersla á aukna fjárfestingu í forvörnum og snemmtækum stuðningi í virku samráði við börn og foreldra.

„Of oft rekast foreldrar á veggi þegar kemur að því að fá nauðsynlega þjónustu mismunandi aðila. Þessa veggi þarf að brjóta niður. Mikil og góð undirbúningsvinna hefur átt sér stað undirfarin ár að brúa gjánna milli þessara þjónustukerfa. Nú er komið að framkvæmdinni og óska ég Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum til hamingju með að vera fyrstu landshlutasamtökin til að stofna farsældarráð og þannig formfesta samstarf og samtal milli þeirra kerfa og þjónustuaðila sem koma að þjónustu við börn í heilum landshluta,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins.

Stofnun ráðsins byggir á öflugum grunni samstarfs sem hefur þróast á Suðurnesjum undanfarin ár, meðal annars í gegnum verkefni á borð við Velferðarnet Suðurnesja, Höldum glugganum opnum og Öruggari Suðurnes. Slík verkefni hafa markað skýra stefnu í þágu snemmtæks stuðnings og lagt grunn að traustu samstarfi þvert á kerfi. Jafnframt er lögð áhersla á virka þátttöku heilbrigðisþjónustu og þátttöku barna og ungmenna en ungmennaráð sveitarfélaga á Suðurnesjum eiga fjóra fulltrúa í ráðinu.

Að ráðinu standa Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær, Vogar, Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Lögreglustjóri og Sýslumaður á Suðurnesjum, auk Svæðisstöðva íþróttahéraða. Sveitarfélögin eiga sameiginlega ábyrgð á starfsemi ráðsins.

Aðstandendur undirrita samning um Farsældarráð, í Reykjanesbæ í morgun.

Samningarnir við landshlutasamtök sveitarfélaga um farsældarráð byggja á niðurstöðum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins um samhæfða svæðaskipan í málefnum barna. Að mati starfshópsins voru mikil tækifæri fólgin í því að starfrækja farsældarráðin eftir gildandi landshlutaskiptingu sveitarfélaga enda þau vön að vinna á þeim grunni. Nú hefur einn landshluti riðið á vaðið og munu fleiri fylgja í kjölfarið.