Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Þjónusta við börn á Hlévangi?
Mánudagur 30. júní 2025 kl. 06:00

Þjónusta við börn á Hlévangi?

Velferðarsvið Reykjanesbæjar hefur óskað eftir því að nýta húsnæði að Faxabraut 13, þar sem hjúkrunarheimilið Hlévangur hefur verið starfrækt, fyrir lögbundna þjónustu við börn, þegar hjúkrunarheimilið flytur í nýtt húsnæði að Nesvöllum.

Erindið var tekið fyrir á fundi stjórnar Eignasjóðs Reykjanesbæjar sem haldinn var 10. júní síðastliðinn. Þar kom fram að nauðsynlegt sé að finna nýja og viðeigandi aðstöðu fyrir þjónustu við börn í samræmi við lögbundnar skyldur sveitarfélagsins.

Stjórn Eignasjóðs fól starfsmönnum eignaumsýslu að skoða málið frekar og vinna áfram með það í ljósi umræðna á fundinum. Ljóst er að staðsetning og umfang húsnæðisins gæti hentað vel til slíkrar starfsemi, en frekari greining og útfærsla eru nauðsynleg áður en ákvörðun verður tekin.

Bílakjarninn
Bílakjarninn