Löður býður eldri borgurum í ókeypis bílaþvott á Fitjum
„Við höfum fengið mjög góðar móttökur á Suðurnesjum og það er ánægjulegt að geta gert eitthvað fyrir eldri borgara á svæðinu,“ segir Hörður Ingi Þórbjörnsson, rekstrarstjóri Löðurs en fyrirtækið býður eldri borgurum ókeypis bílaþvott í stöð fyrirtækisins á Fitjum í Njarðvík í júní og júlí.

Formannsbíllinn fer inn í stöðina.
Eldri borgarar í FEBS, Félagi eldri borgara á Suðurnesjum fjölmenntu í morgun, föstudag með bíla sína í fríþvott en Hörður segir að eftir fund með félaginu í voru hafi komið upp sú hugmynd að koma til móts við eldri borgara með því að bjóða þeim í frían þvott á morgnana kl. 8-10.
„Þetta er hugsað til að aðstoða eldri hópa sem eru óöryggir að mæta í þvott. Þetta er rólegur tími hjá okkur og því tilvalið að aðstoða þá sem vilja læra betur á þetta. Þetta er mönnuð stöð og starfsmenn taka á móti viðskiptavinum þegar þeir mæta með bílinn í þvott. Þetta tilboð er fyrir alla 67 ára og eldri en líka fyrir alla sem eru í FEBS,“ segir Hörður en félagsmenn þar eru frá 60 ára og eldri og gildir tilboðið til allra í FEBS, ekki bara 67 ára og eldri.

Bílarnir koma tandurhreinir út eftir Löðrandi fínan þvott.
Kristján Gunnarsson, formaður FEBS segir samstarfið við Löður ánægjulegt og til fyrirmyndar. „Ég vona að okkar fólk nýti þetta tækifæri í sumar. Þetta er vel boðið hjá Löðri og við þökkum fyrir það,“ sagði Kristján eftir að hafa rennt bíl sínum í gegnum stöðina.
Hörður segir að stöðin sé mjög fullkomin en tveir starfsmenn taka á móti bíleigendum og leiða þá í gegnum stöðina, úða tjöruhreinsi yfir bílinn í byrjun og taka erfiða bletti áður en bíllinn rennur í gegn. Þvottaburstarnir eru af fullkomnustu gerð og rispa ekki lakkið á bílnum og þvotturinn tekur bara nokkrar mínútur.