Miðvikudagur 18. júní 2025 kl. 18:33

Engin í spreng á Reykjanesi

Nú þarf engin að vera í spreng á ferð um Reykjanes. Við Reykjanesvita hefur verið opnuð gestastofa með kaffihúsi sem er opið alla daga í sumar kl. 10-17. Þar er jafnframt opin salernisaðstaða allan sólarhringinn og það litla atriði breytir miklu fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Það hefur nefnilega verið erfitt að skipuleggja ferðir út á Reykjanes þegar ekki hefur verið hægt að bjóða gestum upp á hreinlætisaðstöðu. Það hefur nú verið gert og því þurfa gestir á Reykjanesi ekki að halda í sér í 20 mínútna akstri í þéttbýlið í Reykjanesbæ eða Grindavík.

Kaffihúsið er í gamla vitavarðarhúsinu og er með fallegu útsýni yfir hafið. Sýning um sögu vitanna og vitavarðanna á Reykjanesi er í gestastofunni og sögusýning um sjóslys og ljósvita við Íslandsstrendur á 20. öldinni er í gamla Vélahúsinu. Þeirri sýningu verða gerð sérstök skil hér á vf.is á næstu dögum.

Á pallinum við gestastofuna er fræðslusýning sem unnin er í samstarfi við Reykjanes Geopark þar sem lesa má fróðleik um náttúruperlur á Reykjanesi.

Eyþór Sæmundsson er verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness sem m.a. rekur vefinn visitreykjanes.is. Við tókum Eyþór tali um ferðaþjónustuna á Reykjanesskaganum. Viðtalið er í spilaranum hér að ofan.