Fréttir

Kallar eftir varanlegri lausn  í vatnsmálum á Suðurnesjum
Föstudagur 27. júní 2025 kl. 06:00

Kallar eftir varanlegri lausn í vatnsmálum á Suðurnesjum

Guðrún Ólafsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga, bendir á mikilvægi þess að tryggja örugga og varanlegri lausn í vatnsmálum fyrir svæðið. Hún vakti máls á vatnsmálum svæðisins á fundi Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur á dögunum.

Guðrún lagði áherslu á að ef til þess kæmi að núverandi vatnsból Suðurnesjasvæðisins spillist, til dæmis vegna náttúruváar eða annarra ófyrirséðra atburða, þurfi þegar í stað að vera til staðar raunhæf varaleið. Hún ítrekaði nauðsyn þess að hefja undirbúning slíkra lausna áður en ástandið verður brýnt.

Vatnsöryggi hefur verið sívaxandi áhyggjuefni í kjölfar aukinna jarðhræringa á Reykjanesskaga og lagði bæjarstjórinn því til að þessi mál verði tekin föstum tökum innan almannavarna- og viðbragðsáætlana fyrir svæðið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn