Samkaup segir upp 22 af 56 á skrifstofu
Tuttugu og tveimur af 56 starfsmönnum á skrifstofu Samkaupa hefur verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru hluti af hagræðingaraðgerðum að sögn Heiðar Bjarkar Friðbjörnsdóttur, forstjóra Samkaupa í skriflegu svari til RÚV.
„Þessar aðgerðir voru því óumflýjanlegar til að styrkja rekstur félagsins til framtíðar og halda áfram rekstri öflugra og samkeppnishæfra verslana um land allt,“ segir Heiður Björk við RÚV.
Uppsagnirnar ná til allra deilda Samkaupa á skrifstofu og yfirstjórnar félagsins en ná ekki til starfsfólks verslana. Uppsagnirnar hafa þegar tekið gildi.
Samkaup er í eigu Orkunnar, dótturfélags Skeljar fjárfestingafélags. Gengið var frá kaupum Orkunnar á rúmum helmingshlut Kaupfélags Suðurnesja í Samkaupum í byrjun júní.