Íþróttir

Coca-Cola styrkir Njarðvík
Þrír Njarðvíkingar fagna! Atli Sigurður frá Coca Cola á milli formannanna Hjalta Más og Einars.
Fimmtudagur 26. júní 2025 kl. 11:38

Coca-Cola styrkir Njarðvík

Coca-Cola á Íslandi hefur undirritað nýjan samstarfssamning við bæði Körfuknattleiksdeild og Knattspyrnudeild Njarðvíkur. Með undirrituninni er langt og farsælt samstarf Coca-Cola við körfuknattleiksdeildina endurnýjað og fótboltadeildin bætist nú við í fyrsta sinn.

Coca-Cola hefur verið traustur bakhjarl körfuknattleiksdeildarinnar um áratugaskeið og hefur stuðningur fyrirtækisins skipt miklu máli í uppbyggingu og þróun íþróttastarfsins. Með nýja samningnum styrkist tengslin enn frekar og nær samstarfið nú til fleiri greina innan félagsins.

„Við hjá Njarðvík erum mjög ánægð með áframhaldandi samstarf við Coca-Cola á Íslandi. Samstarfið hefur gengið vel og þau hafa stutt vel við bakið á okkur í gegnum árin. Við hlökkum til að efla þetta góða samstarf enn frekar,“ sagði Einar Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur í knattspyrnudeildinni að fá Coca-Cola með okkur í lið. Við erum stolt af því að fá fyrirtæki með jafn sterka samfélagslega ábyrgð til liðs við okkur og trúum því að þetta verði upphafið að farsælu samstarfi,“ segir Hjalti Már Brynjarsson, formaður knattspyrnudeildar Njarðvíkur.

Að sögn Atla Sigurður Kristjánssyni, Framkvæmdastjóra Markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, er styrkur við íþróttastarf mikilvægur þáttur í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins.

„Við hjá Coca-Cola erum einstaklega glöð að hafa endurnýjað samstarfssamning við Njarðvík. Við höfum átt farsælt samstarf til fjölda ára og erum gríðarlega spennt fyrir áframhaldandi stuðningi við eitt öflugasta íþróttafélag landsins, framtíðin er björt, saman munu við ná langt,“ segir Atli Sigurður.