Bilakjarninn
Bilakjarninn

Íþróttir

Misjafnt gengi Suðurnesjaliðanna í fótboltanum
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 26. júní 2025 kl. 06:00

Misjafnt gengi Suðurnesjaliðanna í fótboltanum

Íslandsmótið í knattspyrnu heldur áfram og eru liðin í neðri deildunum búin að leika átta til níu leiki en tólf lið eru í karladeildunum og mótið því næstum hálfnað, en tíu lið eru í kvennadeildunum. Gengi Suðurnesjaliðanna er misjafnt, sum lið að spila undir væntingum, önnur lið að spila undir pari sem þýðir að þau eru að spila betur en algengur misskilningur íþróttafólks er að tala um að spila yfir pari þegar vel gengur.

Gabríel Sævarsson í baráttu við ÍR-ing í leik liðanna í Keflavík. VF/Hilmar.

Lengjudeild karla

Þrjú lið eru í Lengjudeildinni og má segja að eitt þeirra hafi ekki staðið undir væntingum en eftir að hafa lent í öðru sæti á síðasta ári og ekki komist upp í Bestudeildina í umspilinu, var klárt markmið Keflvíkinga að vinna Lengjudeildina í sumar og fara beint upp. Keflvíkingar fengu kjörið tækifæri á sunnudaginn til að snúa sínu tímabili við, þeir mættu toppliði ÍR og því um sannkallaðan sex stiga leik að ræða fyrir Keflavík. 0-0 varð niðurstaðan og Keflavík í sjöunda sæti með 12 stig en ÍR er efst með 19 stig. Keflavík á leik til góða gegn Grindavík og þarf að fara hala inn stig til að blanda sér í baráttuna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Njarðvíkingar hafa verið að leika mjög vel, eru í öðru sæti með 17 stig. Þeir eru taplausir til þessa en jafnteflin hafa verið full mörg og því er stigasöfnunin ekki meiri en raun ber vitni. Jafntefli varð einmitt niðurstaðan í síðustu umferð, á útivelli á móti á Leikni Reykjavík.

Næsti leikur Keflavíkur og Njarðvíkur er einmitt „el classico,“ liðin mætast á JBÓ-velli Njarðvíkinga á fimmtudagskvöld og hefst leikurinn kl. 19:15.

Grindvíkingar hafa verið brokkgengir í sumar, hafa unnið flotta sigra á móti liðum sem fyrirfram var talið að yrði erfiður andstæðingur, en tapað leikjum og sérstaklega á heimavelli sínum í Grindavík, sem líklegt þótti að yrði hægt að sækja þrjú stig. Slíkur leikur var einmitt á laugardaginn, þá komu nýliðar Völsungs frá Húsavík í heimsókn og unnu sanngjarnan 2-4 sigur og voru Grindvíkingar ansi gestrisnir, þrjú marka Völsunga voru gjöf frá gestgjöfunum. Næsti leikur gulra á föstudagskvöld kl. 19:15 útivelli á móti toppliðinu, ÍR.

Nágrannarnir börðust hart í síðustu viku.
Lengjudeild kvenna

Liðin frá Suðurnesjunum mættust í síðustu umferð en gengi liðanna hefur verið misjafnt, Keflavíkurkonur eins og karlalið félagsins, með skýrt markmið um að vinna Lengjudeildina, hefur verið að hökta á meðan hið sameiginlega lið Grindavíkur og Njarðvíkur hefur spilað vel og halað inn stig. Fyrir leikinn í síðustu viku var Grindavík/Njarðvík með 16 stig í öðru sæti deildarinnar á meðan Keflavík var með 9 stig, mun neðar og því mjög mikilvægt fyrir Keflavík að vinna leikinn til að vera með í baráttunni. Það tókst og Keflavík virðist vera búið að rétta úr kútnum. Næstu leikir liðanna; Grindavík/Njarðvík mætir HK á útivelli miðvikudagskvöldið 25. júní kl. 19:15 en Keflavík á ekki leik fyrr en þriðjudagskvöldið 1. júlí á heimavelli sínum á móti Haukum.

Spútniklið sumarsins til þessa, Þróttur í Vogum.
2. deild karla

Þróttur úr Vogum hefur verið spútnik lið sumarsins og tróna á toppnum í 2. deildinni. Þeir unnu fyrstu fimm leikina, svo kom bakslag með tveimur tapleikjum í röð en þeir réttu úr kútnum og hafa unnið síðustu tvo leiki. Á laugardaginn mættu þeir liði Hvatar/Kormáks og eftir að hafa misst sigurstöðu í jafntefli á 88. mínútu, kom sigurmarkið í uppbótartíma. Næsti leikur Þróttar er á útivelli gegn Hetti/Huginn á sunnudag.

Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Víðis.

Sveinn Þór Steingrímsson er þjálfari Víðismanna en þeir hafa átt erfitt uppdráttar og eru í næstneðsta sæti með 8 stig á meðan neðsta lið er með 5 en stutt er í öryggið, liðið í sjötta sæti er með 12 stig.

„Þetta hefur verið stöngin út hjá okkur má segja, við höfum verið inni í öllum leikjum til þessa og ef hin fræga XG tölfræði hefði talið, værum við pottþétt komnir með fleiri stig. Því hef ég ekk stórar áhyggjur þótt við séum í fallsæti, við höfum verið að spila betur en staða okkar segir til um. Þú þarft að nýta færin, mátt ekki gefa mörk og ef þetta tvennt breytist hjá okkur, þá er ég sannfærður um að við munum hífa okkur upp töfluna. Við eins og aðrir höfum lent í meiðslum, m.a. einn lykilmann í krossbandsslit svo við erum með augun opin fyrir að styrkja hópinn þegar glugginn opnar 17. júlí. Ég mun skoða að reyna að fá lánaða efnilega leikmenn úr liðum í efri deildum, leikmenn sem eru ekki að fá nauðsynlegan séns og vilja fá spilatíma. Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið, er viss um að við munum snúa gengi okkar við,“ sagði Sveinn. Næsti leikur Víðis á heimavelli á sunnudaginn kl. 14. á móti KFA sem er með 8 stig eins og Víðir og því um mjög mikilvægan sex stiga leik að ræða.

Við hvað skyldi Ray ekki vera sáttur við á þessari mynd?
3. deild karla

Reynismenn í Sandgerði eru fulltrúar Suðurnesja í 3. deild. Þeir sigla nokkuð lygnan sjó um miðja deild, eru í fimmta sæti með 14 stig, toppliðið er með 21 stig og botnliðið er með 4 stig og næstneðsta liðið með 6 stig. Ray Anthony Jónsson þjálfari er nokkuð sáttur við tímabilið til þessa.

„Undanfarið hefur verið meiri stöðugleiki hjá okkur og gengið skv. því. Það urðu talsverðar breytingar á hópnum á milli tímabila og það tekur einfaldlega tíma að fínstilla. Við erum búnir að ná í góð úrslit í síðustum þremur leikjum, unnum t.d. Hvíta riddarann á útivelli en þeir eru í öðru sæti í deildinni í dag, og gerðum jafntefli á útivelli á móti toppliðinu, Augnablik, í síðustu umferð. Þar á milli var leikur sem varnarmaðurinn í mér var kannski ekki í skýjunum með, við fengum fjögur mörk á okkur en á móti var Sóknar-Ray glaður því við skoruðum fimm mörk. Ég vil leggja upp með að spila góða vörn, það er auðveldara að ná sigri með því að halda markinu þínu hreinu en auðvitað tökum við svona 4-5 sigur líka. Við erum brattir upp á framhaldið, ég tel okkur vera á pari við bestu liðin og nú þegar við erum búnir að ná takti í okkar leik, er ég bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Ray. Næsti leikur Reynis á sunnudaginn kl. 16 á heimavelli á móti KF.

4. og 5. deild

Hafnir eru fulltrúar Suðurnesja í 4. deild og í þeirri 5. er það lið RB. Hafna-menn töpuðu síðasta leik sínum á móti Vængjum Júpiters, 3-2. Næsti leikur er á heimavelli í Nettó-höllinni á laugardaginn kl. 14:00, á móti KFS.

RB vann sinn síðasta leik, unnu SR á heimavelli, 3-1. Næsti leikur er á laugardag á útivelli á mótum Spyrnum.