Íþróttir

Njarðvíkingar brattir í fótboltanum og ætla að bæta árangur sinn
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 25. júní 2025 kl. 06:00

Njarðvíkingar brattir í fótboltanum og ætla að bæta árangur sinn

Njarðvíkingar hafa leikið vel til þessa í Lengjudeild karla og stefna á að bæta sinn besta árangur til þessa, sem var sjötta sætið í fyrra. Ef þeir ná markmiði sínu, er ljóst að þeir munu annað hvort fara beint upp í Bestudeildina, eða eiga möguleika á að komast upp því sæti fimm til tvö gefa sæti í umspili.

Víkurfréttir kíktu á æfingu hjá Njarðvíkingum og spjölluðu við þjálfarann Gunnar Heiðar Þorvaldsson, og markmanninn Aron Snæ Friðriksson.

Gunnar Heiðar hefur verið ánægður með leik liðsins að undanförnu en hann tók við Njarðvíkingum á miðju tímabili árið 2023 og náði að bjarga þeim frá falli á seinustu stundu. Njarðvíkingar bættu sig í fyrra og stefna á að bæta árangur sinn í ár og ef það tekst blasir einföld staðreynd við, þá eiga þeir séns á sæti í Bestudeildinni að ári.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það vakti athygli á dögunum þegar U-19 ára landslið Íslands var að spila og Gunnar Heiðar og Njarðvíkingar, óskuðu ekki eftir frestun á sínum leik þótt tveir leikmanna liðsins væru að spila með Íslandi. Gunnar Heiðar segist vera með breiðan hóp og treysti öðrum til að stíga inn.

Gróa á Leiti fór á stjá á dögunum þegar ÍA rak sinn þjálfara og þar sem Gunnar Heiðar er búsettur á Akranesi, reyndi Gróa að gera sér mat úr því.

Aron Snær er á sínu öðru tímabili með Njarðvík en hann á um 100 leiki að baki í efstu deild með Fylki. Honum leist vel á verkefnið í Njarðvík og lét Gunnar Heiðar sannfæra sig.

Aron Snær æfði með Grindavík upp alla yngri flokka og telur sig hafa fengið góðan skóla.

Báðir eru viðmælendurnar spenntir fyrir „el classico“ sem er á fimmtudagskvöldið kl. 19:15 á heimavelli Njarðvíkur, JBÓ vellinum.