Hár- og snyrtistofa Orkusystra
Hár- og snyrtistofa Orkusystra

Íþróttir

Sætur sigur Þróttara
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 21. júní 2025 kl. 17:02

Sætur sigur Þróttara

Þróttur í Vogum tók á móti Hvöt/Kormáki á Vogaídýfuvelli sínum og unnu sætan sigur eftir að hafa misst unninn leik í jafntefli á 88. mínútu. Sigurmarkið kom í uppbótartíma við mikinn fögnuð Vogafólks.

Rúnar Eysteinsson kom Þrótti yfir í fyrri hálfleik og sigurmarkið skoraði Birgir Halldórsson skömmu áður en lokaflautið gall en hann var þá nýkominn inn á.

Sigur Þróttar var sanngjarn, þeir voru betri aðilinn og gátu verið komnir í 2-0 áður en Hvöt/Kormákur jafnaði en skot þeirra úr upplögðu færi fór í stöngina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þróttur er því áfram á toppnum, eru með 21 stig en Ægir sem vann stórsigur, 6-1 á Kára, er með 20 stig.

Rúnar Eysteinsson var nálægt því að bæta við öðru marki sínu í leiknum...

... en boltinn fór í stöng.

Auðun Helgason: Rúnar Eysteinsson: Fagnaðarlæti í klefa: