Glæsileg Stapasundlaug opnuð formlega í Reykjanesbæ
Ný og glæsileg sundlaug í Stapaskóla í Reykjanesbæ var opnuð formlega í dag og markar hún tímamót í uppbyggingu íþróttamannvirkja bæjarins. Nýja sundlaugin er 25 metrar að lengd og þá eru tvö vaðlón, annað inni en utandyra eru tveir heitir pottar og einn kaldur. Pottasvæðið snýr til suðurs þannig þar er einnig hægt að sóla sig í góðu veðri. Við pottasvæðið er svo gufubað og infrarauður klefi hluti af húsnæðinu.
Laugin er staðsett við hlið Ice Mar hallarinnar, nýs körfuboltavallar í Stapaskóla sem tekin var í notkun síðasta vetur. Í byggingunni er fyrir grunnskóli og bókasafn en samtals er byggingakostnaður komin yfir 5 milljarða króna. Aðalverktaki framkvæmda í Stapaskóla hefur verið ÍAV.
Aðstaðan samanstendur af 25 metra innisundlaug sem hentar jafnt til íþróttaiðkunar sem og almennrar sundiðkunar. Utandyra er rúmgott pottasvæði þar sem finna má bæði heita og kalda potta. Pottasvæðið snýr til suðurs þannig þar er einnig hægt að sóla sig. Við pottasvæðið er svo gufubað og infrarauður klefi hluti af húsnæðinu og stuðla þau að bættri heilsu og vellíðan gesta.
Húsnæðið, sem er að grunnfleti um 1.455 fermetrar, er hannað með nýjustu kröfum um bæði notendavæni og orkunýtni. Allt tæknirými hússins er á jarðhæð en sundlaugarsvæðið er á efri hæð og nýtir dagsbirtu til fulls. Það býður upp á glæsilegt útsýni bæði til norðurs og suðurs og skapar þannig einstaklega bjart og opið andrúmsloft fyrir gesti.
„Við erum afar stolt af þessari viðbót við íþróttamannvirki bæjarins. Þetta er ekki aðeins sundlaug, heldur heilsulind sem mun þjóna bæði íbúum og gestum Reykjanesbæjar um ókomin ár,“ segir Guðlaugur H. Sigurjónsson, Sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar.
Laugin á að þjóna öllum bæjarbúum en hún er 25 metra löng innilaug, ein vaðlaug er inni, ein úti, tveir heitir pottar og einn kaldur eru á útisvæðinu.
Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar afhenti Hafsteini Ingibergssyni, forstöðumanni íþróttamannvirkja Reykjanesbæjar lykilinn að lauginni og blóm.