ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Ný sundlaug í Stapaskóla opnar í dag
Föstudagur 20. júní 2025 kl. 07:35

Ný sundlaug í Stapaskóla opnar í dag

– opnunarhátíð klukkan 16:00

Ný almenningssundlaug opnar í dag í Stapaskóla og öll eru hjartanlega velkomin að taka þátt í opnunarhátíð sem fer fram kl. 16:00.

Nýja sundlaugin er 25 metra löng og hentar bæði til íþróttaiðkunar og almennrar sundiðkunar. Utandyra býður hún upp á rúmgott pottasvæði með heitum og köldum pottum, auk gufubaðs og infrarauðs klefa sem stuðla að betri heilsu og vellíðan.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Dagskrá opnunarhátíðarinnar:

  • Bæjarstjóri Reykjanesbæjar flytur ávarp
  • Klippt verður á borða
  • Börnin fá að stökkva fyrst í laugina
  • Kaffi, djús og kaka í boði fyrir gesti
  • Laugin opnar fyrir almenning kl. 17:00 og verður opin til 21:30 í kvöld.

Þetta er stór áfangi í uppbyggingu íþróttamannvirkja í bæjarfélaginu og á nýja sundlaugin eftir að verða mikilvæg viðbót fyrir íþróttastarf, skólastarf og almenna heilsueflingu íbúa á öllum aldri, segir á vef Reykjanesbæjar.