Þjóðhátíðardegi fagnað í skrúðgarðinum
Þjóðhátíðardeginum var fagnað með virðulegri dagskrá í skrúðgarinum í Keflavík þann 17. júní. Hátíðarhöldin hófust með guðþjónustu í Keflavíkurkirkju klukkan 12:00 þar sem sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónaði fyrir altari. Kór Njarðvíkurkirkju söng við athöfnina undir stjórn Rafns Hlíðkvist organista.
Að guðþjónustu lokinni var gengið fylktu liði með hátíðarfánann í skrúðgarðinn í Keflavík. Fáninn er sá stærsti á Íslandi og vekur ávallt athygli. Skátar úr Heiðabúum leiddu gönguna ásamt Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þegar gangan kom í skrúðgarðinn tók við hefðbundin hátíðardagskrá.
Jón Guðlaugsson, fyrrum slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, dró þjóðfánann að húni og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri, flutti honum þakkarorð. Karlakór Keflavíkur söng þjóðsönginn við þetta tækifæri.
Sverrir Bergmann Magnússon, varaforseti bæjarstjórnar, flutti setningarræðu dagsins. Fjallkonan var Auður Nótt Matthíasdóttir, nýstúdent, sem flutti ættjarðarljóð af tilefninu. Ræðu dagsins flutti Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur í Reykjanesapóteki. Ræðan var innblásin af jákvæðni og bjartsýni Siggu Pöllu til samfélagsins á Suðurnesjum.
Mikil þátttaka var í skrúðgarðinum þar sem íbúar og gestir komu saman og tóku þátt í þessari hátíðlegu og þjóðlegu stund á áttugasta og fyrsta þjóðhátíðardegi Íslandinga.