Veitingastaðurinn Moss áfram með Michelin-stjörnu
Moss, veitingastaðurinn á The Retreat Hotel við Bláa Lónið, heldur Michelin-stjörnu sinni þriðja árið í röð. Þetta staðfesti Michelin Guide við hátíðlega athöfn í Danmörku í gær. Moss var fyrsti íslenski hótelveitingastaðurinn sem hlaut þessa nafnbót.
Yfirmatreiðslumeistari Moss er Aggi Sverrisson, en hann hefur byggt staðinn upp síðan Moss opnaði árið 2019. Hann fór áður fyrir veitingastaðnum Texture Restaurant & Champagne Bar í London sem var með Michelin-stjörnu öll árin sem hann starfaði. Aggi naut einnig þess heiðurs að læra hjá meistarakokknum Raymond Blanc sem er heimsþekktur fyrir matargerðarlist sína.
„Við erum einstaklega stolt af því að viðhalda Michelin-stjörnunni okkar og höfum lagt hart að okkur til þess að svo megi verða. Þessi viðurkenning er okkur sérstaklega verðmæt, enda starfar hér harðduglegt, hæfileikaríkt og skapandi fólk í öllum stöðum. Við hlökkum til þess að halda áfram að bjóða gestum okkar í einstakt matarferðalag á Moss,“ segir Aggi í tilkynningu frá Bláa lóninu.
Moss ber fram sjö rétta seðil með eða án vínpörunar og notar aðeins árstíðarbundin hráefni af bestu gæðum. Útkoman er skapandi íslensk matargerð undir asískum áhrifum þar sem gestir njóta afbragðsrétta í nýstárlegum útfærslum í einstöku rými Moss. Staðurinn er einnig rómaður fyrir mikið úrval bæði sjaldgæfra og heimsþekktra gæðavína og þetta samspil sköpunar, gæða og skýrrar hráefnisstefnu hefur skilað sér í Michelin-stjörnu allt frá árinu 2023.
Veitingastaðurinn Moss er opinn fimm daga vikunnar, miðvikudag til sunnudags, og geta gestir bókað sjö rétta seðil með eða án vínpörunar.