Langþráð opnun heilsugæslu í Suðurnesjabæ
Íbúar Suðurnesjabæjar geta nú sótt heilsugæslu í heimabyggð eftir margra ára baráttu. Stöðin er til húsa í Vörðunni í Sandgerði og verður opin tvo daga í viku í sumar.
Það var hátíðleg stund miðvikudaginn 4. júní 2025 þegar heilsugæslustöðin í Suðurnesjabæ var formlega opnuð við Miðnestorg 3 í Sandgerði. Þar klipptu á borða Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) og Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar.
Opnun stöðvarinnar eða heilsugæsluselsins markar tímamót í heilbrigðisþjónustu á svæðinu, en íbúar Suðurnesjabæjar hafa lengi kallað eftir því að fá aðgengi að heilsugæslu innan síns sveitarfélags. Nú er það loksins orðið að veruleika og verður þar boðið upp á almenna heilsugæsluþjónustu, bæði lækna- og hjúkrunarmóttöku, tvo daga í viku í sumar. Tímabókanir fara fram í síma 422-0500 á virkum dögum milli kl. 8 og 16.
Margra ára barátta leiddi til árangurs
Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir um árabil. Húsnæði fyrir heilsugæslu í Vörðunni hafði staðið tilbúið frá því byggingin var reist, en var aldrei tekið í notkun vegna niðurskurðar í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Þá var stöðin í Sandgerði lögð niður og íbúar svæðisins þurftu að leita annarra leiða til að fá heilbrigðisþjónustu og næsta heilsugæslustöð var staðsett í Reykjanesbæ.
Uppbyggingin tók nýja stefnu í ágúst 2024 þegar Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir og Magnús Stefánsson undirrituðu viljayfirlýsingu um að opna heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ fyrir sumarið 2025. Það markmið stóðst – og rúmlega það.
Glæsilegt húsnæði og öflugt samstarf
Húsnæðið í Vörðunni hefur nú verið fullklárað og innréttað fyrir starfsemina. Framkvæmdirnar voru í höndum Braga Guðmundssonar byggingarverktaka og hans teymis. Starfsmenn HSS og Suðurnesjabæjar sáu um hönnun, eftirlit og utanumhald, og hlaut verkefnið mikið lof við opnunina. Sérstakar þakkir voru fluttar öllum þeim sem komu að verkefninu og gerðu opnunina að veruleika.
Andrea Klara Hauksdóttir, deildarstjóri heilsugæslu hjá HSS, segir í viðtali að þjónustan í Vörðunni muni taka mið af þörfum íbúanna og þróast í takt við eftirspurn. Markmiðið er að ef vel gengur verði hægt að fjölga opnunardögum í framtíðinni.
Þjónusta í þágu íbúa
Opnun heilsugæslunnar er stórt skref í átt að bættri aðstöðu og þjónustu í Suðurnesjabæ, sem hefur vaxið ört undanfarin ár. Bæjaryfirvöld telja verkefnið mikilvægt fyrir samfélagið og hvetja íbúa til að nýta þjónustuna sem nú er í boði í heimabyggð.
Frekari upplýsingar um þjónustu heilsugæslunnar í Suðurnesjabæ má nálgast á heimasíðu HSS, www.hss.is, þar sem einnig er hægt að skrá sig í þjónustu stöðvarinnar.

Fjölmenni frá HSS var við opnunina í Vörðunni í Sandgerði þar sem ný heilsugæsla í Suðurnesjabæ var kynnt til leiks. Hópurinn var leystur út með gjöfum frá Suðurnesjabæ.