Soroptimistaklúbbur Keflavíkur 50 ára
Vilja koma á framfæri þakklæti til samfélagsins í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins.
Soroptimistasystur í Keflavíkurklúbbi bralla ýmislegt saman, eins og að efla vináttu og tengslanet. Undanfarin ár hefur það verið markmið okkar að fjölga konum í klúbbnum og var það markmið fyrir árið í ár – afmælisárið - að systur yrðu orðnar 50 og því markmiði höfum við nú náð. Sjö systur eru heiðursfélagar og hluti af þeim eru einnig stofnfélagar, sem eru enn virkar og mæta vel.
Styrkir til samfélagsins
Keflavíkurklúbburinn hefur verið mjög virkur í þessi 50 ár, við að styrkja einstaklinga, fjölskyldur og ýmis samtök á Suðurnesjum. Styrkveitingar hafa verið nýttar til náms, til kaupa á ýmsum búnaði og til að hjálpa fjölskyldum veikra barna sem hafa þurft að sækja læknisaðstoð, t.d. út fyrir landsteinana. Krabbameinsfélag Suðurnesja, Velferðarsjóður á vegum kirkjunnar í Keflavík, Suðurhlíð, ný miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum og fleiri samtök hafa fengið fjárhagsstuðning frá klúbbnum svo einhver dæmi séu nefnd. Við í klúbbnum erum hreyknar af okkar vinnuframlagi, okkar sögu og styrkveitingum síðustu 50 árin og höldum ótrauðar áfram inn í framtíðina.
Aðalfundur landssambandsins
Helgina 9. – 11. maí hélt Keflavíkurklúbbur glæsilegan landssambandsfund Soroptimista í Reykjanesbæ. Konur alls staðar af landinu komu til að taka þátt í aðalfundi hreyfingarinnar og hlýða á skemmtileg og uppbyggjandi erindi frá konum bæði í hreyfingunni sem og annarsstaðar frá. Móttaka landsfundargesta var á föstudagskvöldinu í Stapaskóla þar sem Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstýra Suðurhlíðar, tók við styrk frá klúbbnum, Sigríður Pálína Arnardóttir lyfjafræðingur og eigandi Reykjanesapóteks fjallaði um skaða-minnkandi þjónustu sem íbúum Reykjanesbæjar býðst og við fengum innlit inn í líf Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, sitjandi bæjarstjóra. Helginni lauk með glæsilegri afmælishátíð á laugardagskvöldi í Hljómahöllinni. Landsfundarsystur fóru himinlifandi heim eftir helgina.

Um Soroptimistasamtökin
Soroptimistar eru alþjóðasamtök með yfir 80.000 félaga í 127 löndum. Fyrsti klúbburinn var stofnaður árið 1921 í Oakland í Kaliforníu. Heimshlutasamböndin eru fjögur og undir hverju þeirra eru landssambönd. Soroptimistasamband Íslands er hluti af Evrópusambandi Soroptimista.
Fyrsti íslenski klúbburinn var stofnaður árið 1959 en í dag eru starfræktir 20 Soroptimistaklúbbar víðsvegar um landið með tæplega 700 konum. Það hefur alltaf verið markmið samtakanna að innan þeirra finnist fulltrúar sem flestra starfsstétta þannig að samtökin samanstandi af konum með mismunandi bakgrunn.
Soroptimistar eiga ráðgefandi fulltrúa hjá hinum ýmsu stofnunum Sameinuðu þjóðanna og eiga einnig ráðgjafaraðild að Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC).
Systur í Soroptimistaklúbbi Keflavíkur þakka öllum þeim einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem veittu klúbbnum aðstoð og áttu þannig þátt í að gera þessa helgi eftirminnilega. Samfélagið kom öflugt að þessari frábæru helgi. Systur þakka einnig kærlega fyrir frábæra þátttöku allra systra sem mættu.
Bestu kveðjur,
Bjarklind Sigurðardóttir
Formaður Keflavíkurklúbbs