Söngskemmtun í Víkingaheimum á 17. júní
Alexandra Chernyshova, óperusöngkona, og Hilmir Blær Jónsson, níu ára leikari bjóða upp á söngskemmtun í Víkingaheimum á þjóðhátíðardaginn kl. 12.
Alexandra og Hilmir munu syngja nokkur lög, segja sögu um skipið merkilega „Íslendingur“ og kenna gestum hvernig á að dansa Vikivaki. Söngskemmtunin fer fram á íslensku og stendur í um það bil 25 mínútur. Hún er ætluð fjölskyldum og börnum á aldrinum 5 til 13 ára. Börn fá frítt inn í Víkingaheima, en greitt er fyrir aðgang fullorðinna.