HSS
HSS

Mannlíf

Gleði, samstaða og sólríkt veður einkenndu sjómannadagshelgina í Grindavík
Sunnudagur 15. júní 2025 kl. 06:05

Gleði, samstaða og sólríkt veður einkenndu sjómannadagshelgina í Grindavík

Sannkölluð hátíðarstemning ríkti í Grindavík um sjómannadagshelgina þegar bæjarbúar og gestir komu saman til að fagna sjómannadeginum. Hátíðarhöldin stóðu yfir í fimm daga og náðu hámarki á sjálfan sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní, með fjölbreyttri dagskrá sem höfðaði til allra aldurshópa.

Dagskráin hófst miðvikudaginn 28. maí með menningarmorgni í Kvikunni þar sem Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, mætti í morgunkaffi og Vísis-systkinin fluttu tónlist við góðar undirtektir. Í kjölfarið tóku við tónleikar, gönguferðir, listsýningar, íþróttaviðburðir og opið hús hjá Grindjánum, en hápunktur helgarinnar var án efa fjörið á laugardagskvöldinu þegar haldið var ball í Kvikunni með Ingó og fleiri tónlistarmönnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Á sjálfan sjómannadaginn var haldin hátíðleg sjómannadagsmessa í Grindavíkurkirkju þar sem forsetafrúin fyrrverandi, Eliza Reid, flutti hátíðarræðu og sjómenn voru heiðraðir. Að messu lokinni var lagður blómsveigur við minnisvarðann Von, til minningar um þá sem hafa farist á sjó.

Við Kvikuna fór fram lífleg fjölskyldudagskrá með hoppuköstulum, götuboltamóti, kraftaþrautum og sjómannaþrautum í umsjón Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Í tilefni 60 ára afmælis Vísis bauð fyrirtækið upp á afmæliskaffi í Kvikunni, og á Sjómannastofunni Vör bauð Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur gestum til veitinga.

Veðrið lék við hátíðargesti og gleðin skein úr hverju andliti. Samveran skipti greinilega miklu máli eftir krefjandi tíma í sögu bæjarins, og sjómannadagshelgin staðfesti enn á ný þann samhug og samstöðu sem einkenna samfélagið í Grindavík.