HSS
HSS

Mannlíf

Frá Háskólabrú til hjúkrunar
Frá vinstri: Sonný, Bryndís og María. Þóra er á stakri mynd.
Laugardagur 14. júní 2025 kl. 06:10

Frá Háskólabrú til hjúkrunar

Háskólabrú Keilis er nám fyrir fullorðna námsmenn sem eiga þann draum að ljúka námi á framhaldsskólastigi og opna þannig möguleika á háskólanámi. Haustið 2015 hófu þær Bryndís, María, Sonný og Þóra nám á Háskólabrú í staðnámi en komu úr sitt hvorri áttinni og með sína drauma. Allar voru þær með eitt sameiginlegt markmið sem var að ljúka námi á framhaldsskólastigi. Tvær þeirra hugðust velja verk- og raunvísindadeild en hinar tvær völdu félagsvísinda- og lagadeild. Að lokum völdu þær allar nám á verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar en þær voru enn óákveðnar hvaða nám þær ætluðu að velja í framhaldi. Strax um haustið myndaðist góður vinskapur og hópurinn varð samrýmdari. Á endanum ákváðu allar fjórar konurnar að stefna á nám í hjúkrunarfræði og styðja þannig áfram við hvor aðra.

Í dag, 9 árum eftir útskrift frá Háskólabrú Keilis, starfa þær allar sem hjúkrunarfræðingar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi. Haft var samband við þær stöllur til að fá fram hvað það hefði verið sem dró þær að námi á Háskólabrú og hvort þær hefðu einhver hvatningarorð til annarra í sömu stöðu og þær voru fyrir rúmum 10 árum síðan.

Þóra.
Háskólabrú veitti tækifæri til frekara náms

Ástæður fyrir vali þeirra á Háskólabrú voru mismunandi. Sonný sagðist hafa tekið ákvörðun um að fara aftur af stað eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn og vildi byggja upp betri framtíð. Hún hafði jafnframt heyrt góða og jákvæða hluti frá fólki í kringum hana um námið og taldi því líklegt að námið væri hennar leið að háskólanámi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

María sagði að fjölbrautaskólakerfið hefði ekki hentað henni og því hefði hún ákveðið að velja Háskólabrú sem var í hennar heimabyggð og þannig opna fyrir möguleika að hefja háskólanám.

Það sem dró Þóru af stað var að hún fann loksins að hún var tilbúin að fara læra. Nú var þetta hennar val og á hennar forsendum eftir að hafa tekið námshlé. Þegar hún hafði lokið námsleiðinni Menntastoðir hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kom ekkert annað til greina en að halda áfram og því valdi hún Háskólabrú sem var í hennar heimabyggð.

Bryndís sagði ástæðuna fyrir því að hún hefði farið af stað í nám vera þegar hún átti áhugavert samtal við unga dóttur sína þegar hún var 32 ára sem kveikti í henni neista að láta draum sinn rætast sem hafði verið að starfa sem ljósmóðir. Hún sagði upp vinnunni og tók ákvörðun um að mennta sig í því sem hún hefði áhuga á að starfa við en ekki eingöngu það sem var í boði fyrir hana. Hún átti fund með náms- og starfsráðgjafa Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum þar sem sett var upp áætlun. Niðurstaðan var að skrá sig í námsleiðina Menntastoðir og svo í framhaldi Háskólabrú sem myndi opna möguleika á því háskólanámi sem hún hafði áhuga á.

Bryndís.
Hjúkrunarfræði heillandi starf

Þegar leið á námið á Háskólabrú fóru þær að velta fyrir sér næstu skrefum og framtíðinni. Þær völdu allar nám í hjúkrunarfræði sem hafði ekki endilega verið markmiðið í upphafi en eftir kynningar hjá háskólunum og nánari skoðun varð það fyrir valinu. Sú ákvörðun var jafnframt ákveðin hvatning og stuðningur fyrir þær að stefna í sömu átt. Nú þegar þær hafa starfað sem hjúkrunarfræðingar í nokkur ár eru þær sannfærðar um að ákvörðunin var rétt.  Að þeirra mati er starfið afar krefjandi en um leið gefandi og einn af kostum þess er að enginn dagur er eins.

María
Góður undirbúningur fyrir háskólanám

Vinkonurnar telja sig hafa fengið góðan undirbúning fyrir nám í hjúkrunarfræði. Þær nefna að sjálfstraust þeirra hafi aukist í náminu á Háskólabrú þar sem þær fengu góða leiðsögn í námstækni og skipulagningu í námi. Þær lærðu bæði að vinna sjálfstætt en einnig mikilvæg vinnubrögð í hópavinnu sem og hvernig best er að vinna undir álagi. Að mati  Sonnýjar var Háskólabrú staðurinn sem hún lærði námstækni og að forgangsraða verkefnum. Áður hafði henni ekki gengið sérstaklega vel í námi og átti þá erfitt með yfirsýn yfir verkefni sem og skipulagningu fyrir verkefni og próf. Fyrir námið á Háskólabrú hafði Sonný ekki trú á því að háskólanám væri fyrir hana og tilhugsunin hræddi hana.  Í náminu á Háskólabrú hafi kennslan og verkefnin sem lögð voru fyrir verið þess eðlis að það ýtti undir aukið sjálfstraust og þannig jókst hæfni og þekking sem efldi hana enn frekar. Hún er því gríðarlega þakklát fyrir að á Háskólabrú fékk hún verkfæri í hendurnar til að geta sem best  forgangsraðað lærdómnum og greina það mikilvæga frá öðru sem nýttist henni svo áfram í háskólanáminu.

Bryndís segist hafa verið eins vel undirbúin og hún gat orðið fyrir háskólanám eftir námið á Háskólabrú. Hún byrjaði óörugg í náminu en var full sjálfstrausts þegar hún hóf háskólanámið. Helstu kostir við námið á Háskólabrú var bekkjarkerfið sem og umhverfið sem boðið var upp á. Þá hafi persónuleg nálgun starfsfólksins sem og góð tenging við nemendur í sömu stöðu gert það að verkum að hún byggði sig upp og sjálfstraustið jókst til muna.

Þær Þóra og María tóku í sama streng og Sonný og Bryndís og töldu sig hafa verið undirbúnar fyrir nám á háskólastigi þótt það hafi vissulega verið krefjandi en á sama tíma lærdómsríkt og eitthvað sem var vel yfirstíganlegt.

Sonný.
Láttu drauminn rætast

Þær Bryndís, María, Sonný og Þóra vildu allar koma því á framfæri að Háskólabrú hefði gefið þeim sjálfstraust sem hefði hjálpað þeim að láta draum sinn rætast, sem var að ljúka námi á háskólastigi. Þær vilja hvetja þá sem tengja við þeirra sögu að skoða þann möguleika fyrir alvöru því þær sjá sannarlega ekki eftir að hafa farið af stað og eru  búnar að byggja sér betri framtíð.

,,Ég gæti ekki mælt meira með Háskólabrú Keilis fyrir þá sem langar að fara aftur í nám, ég verð ætíð þakklát fyrir allt sem ég lærði þar og þakkát fyrir að það leiddi mig að því lífi og starfi sem ég hef í dag“ segir Sonný og hélt áfram ,,ég skil vel að sumir treysti sér ekki að fara af stað því ég hafði ekki trú á mér sjálfri en ég tók áhættuna og Háskólabrú er góður vettvangur til að byggja upp sjálfstraust og læra námstækni“.

María taldi um tíma að háskólanám væri ekki fyrir hana og fannst eitthvað við þá tilhugsun sem hræddi hana. ,,Þetta var allt öðruvísi en ég hélt og hvet alla þá sem eiga draum að fara í háskólanám að láta ekki ótta eða annað stoppa sig,“ segir María.  Þóra og Sonný taka í sama streng og María og hvetja þá sem eiga sér framtíðardrauma um námslok á háskólastigi að hika ekki heldur láta vaða og draumar séu gerðir til þess að rætast.

Bryndís nefndi að hún hefði aldrei verið sterk í bóklegu námi og að hún hefði fengið að heyra það frá kennara í grunnskóla að hún væri heimsk. Þar gafst hún upp á því að læra og útilokaði sinn draum um að mennta sig frekar. Líkt og fram hefur komið þá kviknaði neisti og löngun í að fara aftur af stað eftir samtal við dóttur sína og lokaorð Bryndísar eru svo eftirfarandi hvatningarorð til þeirra sem tengja við hennar sögu:  „Við eigum bara eitt líf, gerðu það sem þig dreymir um, ekki láta einn né neinn segja þér eitthvað annað. Þú getur það alveg eins og hver annar, ég lofa þér að þú átt eftir að koma sjálfum þér skemmtilega á óvart.“

Að lokum

Það mátti skynja þakklæti og auðmýkt vinkvennanna yfir að hafa fengið tækifæri til menntunnar sem varð til þess að draumurinn um betri framtíð rættist. Að fá annað tækifæri til náms á fullorðinsárum er nauðsynlegur valkostur í íslensku samfélagi. Háskólabrú Keilis hefur átt stóran þátt í því að efla menntunarstig á Suðurnesjum. Nú í júní hafa um 2700 nemendur útskrifast af námsleiðinni og samkvæmt eftirfylgnikönnunum hafa um 85% þeirra farið í háskólanám í framhaldi.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið á Suðurnesjum sem og landið allt að fullorðnir námsmenn fái tækifæri til menntunar sem getur haft jafn jákvæð áhrif á líf fólks líkt og það gerði fyrir þessar metnaðarfullu konur. Þá er það ekki síður ánægjulegt og jákvætt að þær hafi skilað sér í mikilvægt starf og hlutverk fyrir samfélagið á Suðurnesjum.