HSS
HSS

Mannlíf

Samhjól um Suðurnesin með hjartað á réttum stað
Sunnudagur 15. júní 2025 kl. 06:10

Samhjól um Suðurnesin með hjartað á réttum stað

Team Rynkeby safnar fyrir Umhyggju. Hjólað í blíðskaparveðri á Uppstigningardag.

Það er sannarlega gott að hjóla á Suðurnesjum – og það sannaðist á Uppstigningardag þegar íslenska teymi Team Rynkeby stóð fyrir glæsilegu samhjóli um svæðið í sól og blíðu. Hjólað var tæplega 50 kílómetra hringur sem hófst og endaði í Sandgerði, en margir þátttakendur hjóluðu mun lengra, sumir jafnvel alla leið frá höfuðborgarsvæðinu og til baka.

Hjólaferðin hófst við íþróttamiðstöðina í Sandgerði þar sem lögreglan á Suðurnesjum fylgdi hópnum úr hlaði í átt að Garði. Fyrsta stopp var við Garðskagavita, en þaðan var haldið í gegnum miðbæ Reykjanesbæjar og áfram að Fitjum í Njarðvík. Þar beið hópsins kærkomin kaffipása við skrifstofur Kadeco og Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum. Eftir það lá leiðin um Ósabotna og stoppað var við Hvalsneskirkju áður en ferðin endaði með grillveislu við Reynisheimilið í Sandgerði.

Þrír liðsmenn Team Rynkeby í Sandgerði standa vaktina fyrir Suðurnesjamenn í ár, og voru einmitt þeir sem skipulögðu þennan vel heppnaða samfélagsviðburð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Hjólreiðar með tilgang

Markmið Team Rynkeby er skýrt: að safna fé fyrir Umhyggju – félag langveikra barna. Allt sem safnast í tengslum við verkefnið rennur beint til samtakanna. Á meðan söfnunin stendur yfir leggja liðsmenn sig fram við að hjóla eins mikið og þeir geta, bæði til undirbúnings og sem hluta af sýnileika verkefnisins.

Stóra ferð Team Rynkeby fer fram dagana 5.–12. júlí, þar sem hópurinn hjólar frá Kolding í Danmörku og endar í París – um 1300 km á átta dögum. Þar koma saman rúmlega 2.500 gulklæddir hjólarar frá átta Evrópulöndum sem allir hafa sama markmið: að styrkja langveik börn í sínum heimalöndum.

Stuðningur úr samfélaginu

Team Rynkeby á Íslandi vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sem sýna liðsmönnum tillitsemi í umferðinni á meðan æfingar standa yfir, og einnig þeim fjölmörgu sem þegar hafa stutt söfnunina.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í næsta hjólahópi og eru áhugasamir hvattir til að sækja um á heimasíðu Team Rynkeby á Íslandi.

Styrkja má verkefnið með eftirfarandi leiðum:

Beinn styrkur:

Reikningur: 537-26-567

Kennitala: 580216-0990

Styrktarsímar:

907 1601 – 1.500 kr.

907 1602 – 3.000 kr.

907 1603 – 3.000 kr.