HSS
HSS

Fréttir

Stapaskóli hlýtur hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar 2025
Fulltrúar Stapaskóla sem tóku við verðlaununum.
Sunnudagur 15. júní 2025 kl. 06:00

Stapaskóli hlýtur hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar 2025

Árleg afhending Hvatningarverðlauna menntaráðs Reykjanesbæjar fór fram miðvikudaginn 4. júní við hátíðlega athöfn þar sem framúrskarandi skólaþróunarverkefni voru heiðruð. Alls bárust tólf tilnefningar að þessu sinni – sjö frá grunnskólum og fimm frá leikskólum bæjarins – og bar verkefnið Heillaspor frá Stapaskóla sigur úr býtum í ár.
Heillaspor – verkefni sem byggir upp vellíðan og öryggi

Sigurverkefnið, Heillaspor – verkefni til að efla vellíðan og tilfinningalegt öryggi í skólastarfi, hefur verið í þróun og innleiðingu við Stapaskóla síðustu tvö skólaár. Markmið þess er að styrkja félagslega og tilfinningalega velferð nemenda og skapa styðjandi og jákvætt skólaumhverfi þar sem öll börn finna sig örugg og virt.

Liður í því er margvísleg fræðsla og þjálfun starfsfólks, regluleg námskeið og fagleg ráðgjöf sem miðar að því að auka skilning á undirliggjandi þáttum hegðunar nemenda. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að verkefnið verði hluti af daglegu skólastarfi með aðgerðum á borð við fría ávexti, veggspjöld með hvatningarorðum, reglulega endurgjöf frá starfsfólki og handleiðslu í lausnamiðaðri nálgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Að verkefninu stendur stórt teymi starfsmanna: Jón Haukur Hafsteinsson, Haukur Hilmarsson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Selma Ruth Iqbal, Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir, Linda Ósk Júlíusdóttir, Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson og Gróa Arndal Axelsdóttir. Verkefnið hefur þegar haft sýnileg áhrif á menningu skólans og er til fyrirmyndar í skólaþróun innan Reykjanesbæjar.

Sérstakar viðurkenningar til Háaleitisskóla og Heiðarskóla

Menntaráðið veitti einnig sérstakar viðurkenningar til tveggja annarra verkefna sem þóttu skara fram úr. Annars vegar var það verkefnið Nýsköpunar- og tæknimennt frá Háaleitisskóla, undir leiðsögn Drífu Hjördísar Thorstensen. Verkefnið kynnir nemendum aðferðir skapandi lausnaleitar, forritunar, rafrænna lausna og sjálfbærni í gegnum fjölbreytt tæki og tól, allt frá Lego Spike til 3D prentunar og sýndarveruleika.

Nýsköpunar- og tæknimennt frá Háaleitisskóla, undir leiðsögn Drífu Hjördísar Thorstensen, hlaut sérstaka viðurkenningu.

Hins vegar hlaut verkefnið Félagsfærni sem hittir í mark viðurkenningu fyrir áhrifaríkt starf í Heiðarskóla, þar sem markvisst var unnið með 7. bekk að því að efla jákvæð samskipti og bæta hópanda. Með markvissri vinnu í smærri hópum og samvinnu heimilis og skóla tókst að bæta samskipti og aga, og efla félagslega hæfni nemenda.

Verkefnið Félagsfærni sem hittir í mark, fékk viðurkenningu fyrir áhrifaríkt starf í Heiðarskóla.

Tilgangur og þakklæti

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar eru árleg viðurkenning fyrir metnaðarfullt og nýstárlegt skólastarf í leik-, grunn- og tónlistarskólum bæjarins. Markmið þeirra er að hvetja til nýsköpunar og fagmennsku, og deila góðum hugmyndum sem geta orðið öðrum til eftirbreytni.

Samkvæmt menntaráði er mikill kraftur í skólastarfi Reykjanesbæjar og mikilvægast af öllu er elja og áhugi þeirra fjölmörgu starfsmanna sem daglega leggja sig fram við að skapa öflugt og uppbyggilegt námsumhverfi fyrir börnin í samfélaginu. Verðlaunaafhendingin var hluti af stærri dagskrá þar sem einnig voru undirritaðir samningar við skólastjórnendur vegna styrkveitinga úr Nýsköpunar- og þróunarsjóði menntasviðs fyrir skólaárið 2025–2026.

„Reykjanesbær lýsir stolti yfir þeim fjölbreyttu og öflugu verkefnum sem skólarnir sinna – verkefni sem styðja við þroska og velferð nemenda og móta sterkan grunn að framtíð samfélagsins,“ segir m.a. í umfjöllun um hvatningarverðlaunin.