HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvík með flottan sigur eftir að hafa lent undir
Laugardagur 14. júní 2025 kl. 17:52

Njarðvík með flottan sigur eftir að hafa lent undir

Njarðvíkingar tóku á móti Þór Akureyri í Lengjudeild karla í dag og unnu góðan sigur, 3-1, eftir að hafa lent undir á 61. mínútu.

Það voru þeir Oumar Diouck, Valdimar Jóhannson og Viggó Valgeirsson sem skoruðu mörk Njarðvíkinga. Oumar jafnaði tveimur mínútum eftir að Þór komst yfir, Valdimar kom þeim yfir á 72. mínútu og Viggó innsiglaði sigurinn á 94. mínútu.

Njarðvíkingar komu sér á ný í 2. sætið í Lengjudeildinni með sigrinum, eru með 16 stig en ÍR er á toppnum með 18.

Bílakjarninn
Bílakjarninn