Þróttarar aftur á toppinn í 2. deildinni eftir 2-0 sigur á heimavelli gegn Haukum
Reynir með sigur í gærkvöldi í 3. deildinni.
Þróttur frá Vogum tók á móti Haukum á Vogaídýfuvellinum í dag og unnu flottan sigur, 2-0.
Hitt liðið í 2. deildinni, Víðir, er að fara hefja leik á Blönduósi á móti Kormáki/Hvöt.
Jón Veigar Kristjánsson kom Þrótti yfir strax á 3. mínútu og á 86. mínútu bætti Auðun Gauti Auðunsson seinna markinu við.
Þar sem Ægir úr Þorlákshöfn gerði jafntefli í sínum leik, eru Þróttarar á ný komnir á toppinn, eru með 18 stig á móti 17 stigum Ægis.
Í 3. deildinni gerðu Reynismenn góða ferð í Kópavoginn í gærkvöldi og unnu KFK í miklum markaleik, 4-5. Mörk Reynismanna skoruðu Alex Þór Reynisson, Ólafur Darri Sigurjónsson (2), Ægir Þór Viðarsson og Leonard Adam Zmarzlik.