HSS
HSS

Íþróttir

Grindavík gerði jafntefli í Árbænum
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 14. júní 2025 kl. 07:27

Grindavík gerði jafntefli í Árbænum

Keflavík og Njarðvík leika í dag

Áttunda umferð Lengjudeildar karla hófst í gær og var eitt Suðurnesjaliðanna að keppa, Grindvíkingar kíktu í heimsókn í Árbæinn og mættu Fylkismönnum. Eftir að hafa lent undir náði Grindavík að jafna, lokatölur 1-1.

Keflavík og Njarðvík eru að spila í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ármann Ingi Finnbogason jafnaði fyrir Grindavík á 72. mínútu. Minnstu munaði að Fylkir skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en dómararnir gátu ekki séð hvort boltinn fór yfir línuna.

Keflavík mætir Völsungi á Húsavík kl. 14 í dag og Njarðvík fær Akureyrar-Þórsara í heimsókn og hefst sá leikur kl. 16.

ÍR jók foyrstu sína á toppnum með sigri í Breiðholtsslagnum á móti Fylki og er með 18 stig. Njarðvík sem á leik til góða er með 14 stig, Grindavík er í fjórða sæti með 11 stig og á leik til góða, og Keflavík sem á tvo leiki til góða, er með 10 stig.