HSS
HSS

Íþróttir

100. deildarmarkið hjá Elíasi í lokaleiknum með NAC Breda
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 16. júní 2025 kl. 06:05

100. deildarmarkið hjá Elíasi í lokaleiknum með NAC Breda

Var óvenju ungur þegar stefnan var sett á atvinnumennsku

Elías Már Ómarsson er keflvískur atvinnuknattspyrnumaður. Hann er að klára sitt ellefta ár í atvinnumennsku en hann er fæddur og uppalinn Keflvíkingur og spilaði með heimaliðinu þar til draumurinn um atvinnumennsku rættist. Hann spilaði síðast með NAC Breda í hollensku úrvalsdeildinni en henni lauk á dögunum og skoraði Elías mark Breda í 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Willem II. Þetta var áttunda mark Elíasar á leiktíðinni og endaði hann markahæstur í liðinu. Markið var sögulegt fyrir Elías, þetta var 100. deildarmark hans á ferlinum en hann skoraði átta mörk fyrir Keflavík áður en hann hélt á vit ævintýranna erlendis eftir 2014 tímabilið.  Elías er samningslaus og veit ekki hvað bíður hans en hann stefnir á að eiga fimm ár í viðbót í atvinnumennskunni.

Elías vissi snemma hvert hann ætlaði sér, lokaði því námsbókunum í FS og setti alla sína orku í boltann.

„Ég var átján ára þegar ég hætti í skólanum, ég missti alveg áhugann á náminu og í stað þess að hanga bara heima, sofa og gera ekki neitt af viti, setti ég stefnuna þangað sem ég komst og er ennþá á. Ég tók ákvörðun um að leggja í raun allt undir og í stað þess að mæta í tíma fór ég í Reykjaneshöllina og tók aukaæfingar. Ég æfði eins og atvinnumaður má segja, stundaði líkamsrækt og synti, mætti svo á æfingar með liðinu seinni partinn og þetta skilaði sér inn á völlinn. Sumarið eftir árið 2014 var ég búinn að festa mig í sessi í Keflavíkurliðinu og atvinnumennskan hófst eftir það sumar, n.t. hjá Valerenga í Noregi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Elías leiðir syni sína inn á völlinn, Leon Elí til vinstri og Gabríel Már til hægri. Myndir úr einkasafni.

Ég var lengi búinn að ætla mér að komast  í atvinnumennsku, ég á minningar af mér sem smágutta að horfa á bróður minn sem er fjórum árum eldri, ég vildi fá að vera með og snemma var ég farinn að spila upp fyrir mig í yngri flokkum Keflavíkur. Ég var efnilegur leikmaður og setti stefnuna snemma á atvinnumennsku og því var gaman þegar draumurinn rættist þegar ég var nítján ára gamall.

Ég fór út til Noregs eftir áramót, þá nýorðinn tvítugur og spilaði eitt og hálft tímabil með Valerenga, ég var svo lánaður til Gautaborgar í Svíþjóð og þeir keyptu mig svo. Mér gekk vel til að byrja með en svo gekk liðinu illa og allt í rugli hjá félaginu, ég spilaði ekki mikið það tímabil og á næsta undirbúningstímabili var mér tilkynnt af nýjum þjálfara að hann teldi sig ekki hafa not fyrir mig og ég mætti leita mér að nýju liði. Þetta var auðvitað högg en ég ákvað að setja undir mig hausinn og sanna mig fyrir þjálfaranum og endaði á að byrja inn á í fyrsta leiknum, skoraði tvö mörk og lék nánast alla leiki til að byrja með. Ég var að spila vel og kunni vel við mig hjá félaginu og því varð hálfgert áfall þegar nágranni minn bankaði upp á hjá mér og sýndi mér blaðagrein, þar kom fram að ég og tveir aðrir leikmenn væru til sölu. Mér fannst þetta ansi lúalegt, enginn hafði sagt mér nokkuð og ég hélt að allt léki í lyndi, þetta var tveimur dögum fyrir leik og kannski kom á óvart að ég skyldi byrja þann leik og ekki nóg með það, ég skoraði þrennu í 3-0 sigri okkar! Upp frá þessu kom áhugi frá hollenska liðinu Excelsior frá Hollandi en þá byrjaðu Svíarnir með stæla og hækkuðu verðmiðann en ég fann á þessum tímapunkti að ég vildi losna og gekk til liðs við hollenska liðið, ferill minn þar byrjaði árið 2018.“

Bakslag í Frakklandi

Elíasi gekk vel hjá Excelsior en liðið féll á tímabilinu sem hann gekk til liðs við þá. Næsta tímabil var fljótlega blásið af vegna covid en plan Elíasar var að taka þátt í að koma liðinu strax upp aftur og spila á því stóra sviði sem hollenska úrvalsdeildin er. Tímabilið eftir skoraði hann 22 mörk og var að spila vel, samningurinn var búinn en félagið gat framlengt um eitt ár. Elías vildi losna en atvinnumennskan er harður heimur og hann þurfti að taka eitt tímabil í viðbót en þá gat hollenska liðið selt Elías því franska liðið Nîmes Olympique sýndi honum áhuga. Elíasi leist vel á þetta en þetta reyndist ekki gæfuspor.

„Ég gekk til liðs við franska liðið sem þá var í B-deildinni í Frakklandi, þeir voru nýfallnir. Þetta byrjaði ágætlega en mér leið ekki vel á öðru tímabilinu, mínir bestu félagar yfirgáfu félagið og það var nánast eingöngu töluð franska og ég var ekki sleipur í henni. Staðurinn sem slíkur var flottur, alltaf gott veður en mér leið ekki vel utan vallar og þá er erfitt að standa sig inni á honum. Það var skipt um þjálfara og okkur kom ekki vel saman, forseti félagsins var ekki góður maður og það var bara allt í rugli í þessum klúbbi. Ég tilkynnti þeim að ég vildi losna en þeir tóku það ekki í mál og eftir æfingu þar sem nýi þjálfarinn kom virkilega illa fram við mig, sprakk allt í loft upp má segja. Hann í raun niðurlægði mig fyrir framan aðra leikmenn, talaði um mig á frönsku sem hann vissi að ég skyldi ekki. Ég lét hann heyra það og tók poka minn og fór heim. Ég var settur í bann, mátti ekki æfa með félaginu sem var bara það besta sem gat gerst fyrir mig því ég vildi hvort sem er losna. Á endanum fékk ég að fara á frjálsri sölu og gekk þá til liðs við liðið sem ég var hjá þar til á dögunum, NAC Breda,“ segir Elías.

Marki fagnað með NAC Breda.
Landsliðið

Elías skrifaði undir hjá NAC Breda á 28. ára afmælisdegi sínum, 18. janúar 2023 og leið honum vel hjá liðinu en veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér þar sem hann er samningslaus. Á dögunum var ákveðið að hann verði ekki áfram hjá félaginu og er hann því að bíða eftir næsta tilboði en áhugi hefur verið frá liðum í Hollandi og Englandi. Hann hefur leikið fyrir Íslands hönd, á níu A-landsleiki og hefur metnað fyrir að auka við þann leikjafjölda.

„Þetta hefur gengið vel hjá mér, ég skoraði fimmtán mörk á þar síðasta tímabili og setti átta á þessu og var markahæstur í liðinu sem gekk ekki nógu vel og við enduðum í fimmtánda sæti af átján liðum. Ég var að klára samninginn svo ég get gert það sem ég vil. Klúbburinn hafði sagt mér að áhugi væri hjá þeim fyrir að halda mér en við náðum ekki saman og því er umboðsmaður minn að kanna áhuga liða en bæði hafa félög frá Hollandi og Englandi sýnt áhuga. Það var alltaf draumurinn að leika í Englandi og hver veit nema sá draumur rætist nú en ég er pollrólegur og ætla njóta þess að komast í frí. Ég ætla mér að eiga fimm ár í viðbót í atvinnumennsku en meiðsli geta verið fljót að setja strik í þann reikning. Ég hef verið mjög heppinn hvað það varðar allan minn feril, var frá í hálft tímabil hjá NAC Breda, fór í aðgerð á hné og þar með er það upptalið og vonandi verð ég áfram heill heilsu.

Synirnir bíða spenntir eftir að pabbi komi inn á völlinn.

Ég hef spilað landsleiki fyrir öll yngri landsliðin og á 9 leiki með A-landsliðinu, ég var inni í myndinni hjá Heimi Hallgríms og Lars og auðvitað er alltaf markmiðið að komast aftur í það en þjálfararnir eru með sína leikmenn og það er bara eins og það er. Ef ég stend mig þá veit ég að ég kem til greina en annars er ég ekki mikið að velta því fyrir mér, ég einbeiti mér bara að mínu félagsliði og standa mig vel þar, ef það gerist þá stundum gerast góðir hlutir.

Fjölskyldunni líður vel hér í Hollandi og því á ég frekar von á að við höldum áfram hér, ég á unnustu og eigum við þrjú börn á aldrinum sjö til tveggja ára. Unnustan er frá Keflavík eins og ég, æskuástin má segja. Hún hefur verið mér mikil stoð og stytta allan þennan tíma, hefur fórnað sínu má segja fyrir mig og fjölskyldu okkar og fyrir það er ég afskaplega þakklátur,“ sagði Elías að lokum.

Elías og Tinna Björt sem heldur á Evu Lilju. Synirnir Leon Elí og Gabríel Már fyrir framan.