HSS
HSS

Mannlíf

Flott opnunarhelgi Bryggjunnar í Grindavík
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 16. júní 2025 kl. 09:53

Flott opnunarhelgi Bryggjunnar í Grindavík

„Við erum mjög ánægð með byrjunina, einhvers staðar þurfti að byrja og ég er viss um að það mun fjölga mikið hjá okkur á næstunni,“ segir Rakel Gunnlaugsdóttir, rekstarstjóri Bryggjunnar í Grindavík. Staðurinn hafði verið lokaður síðan í nóvember ´23 og var mikil ánægja meðal Grindvíkinga og annarra með að hann sé opnaður á ný. 

Rakel segir að til að byrja með verði opið til fjögur en það verði endurskoðað ef aðsóknin býður upp á það.

„Við þurftum einhvers staðar að byrja og getum ekki annað en verið ánægð með helgina. Það var ofboðslega gaman að hitta grindvísku fastagestina og mjög margir erlendir ferðamenn kíktu við líka. Grindavík er full af ferðamönnum og þegar veðrið er eins og það var um helgina, er klárlega grundvöllur fyrir að hafa opið. Við munum byrja svona og tökum svo stöðuna, við erum alsæl með að geta opnað á ný og erum viss um að það verði mjög mikið að gera hjá okkur í sumar,“ segir Rakel.

Bílakjarninn
Bílakjarninn