Þjóðhátíðardegi fagnað í Reykjanesbæ á morgun
Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður fagnað í Reykjanesbæ með hátíðardagskrá og fjölbreyttri skemmtidagskrá sem fram fer í skrúðgarðinum í Keflavík.
Hátíðardagskrá
Dagskráin hefst með hátíðarguðþjónustu í Keflavíkurkirkju klukkan 12:00. Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar fyrir altari og kór Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvist organista. Að guðþjónustu lokinni verður gengið fylktu liði með hátíðarfánann í skrúðgarðinn í Keflavík undir forystu skáta úr Heiðabúum og Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Þar tekur við hefðbundin hátíðardagskrá. Jón Guðlaugsson, fyrrum slökkviliðsstjóri dregur þjóðfánann að húni og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir starfandi bæjarstjóri flytur honum þakkarorð. Við þetta tilefni syngur Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn. Setningarræða dagsins er í höndum Sverris Bergmann Magnússonar, varaforseta bæjarstjórnar. Auður Nótt Matthíasdóttir, nýstúdent, verður í hlutverki fjallkonu og flytur ættjarðarljóð. Ræðu dagsins flytur Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur.
Íbúar eru hvattir til að fjölmenna í skrúðgarðinn og taka þátt í þessari hátíðlegu athöfn.
Skemmtidagskrá
Að lokinni hátíðardagskrá verður boðið upp á skemmtidagskrá sem byggist að stórum hluta á framlagi þeirra glæsilegu list- og íþróttahópa sem við erum svo heppin að eiga í bænum okkar. Ungleikhúsið, Leikfélag Keflavíkur, Fimleikadeild Keflavíkur, Taekwondodeild Keflavíkur og DansKompaní handhafi Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar, fara þar fremst í flokki og bjóða upp á glæsileg atriði sem eru afrakstur vetrarstarfsins hjá þeim. Þá mun söngkonan Elín Snæbrá, sigurvegari Hljóðnemans, söngkeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja stíga á stokk og botninn í dagskrá á sviði slær sjálfur Prettyboitjokkó.
Alls kyns leikjastöðvar verða á víð og dreif í garðinum og eru þær í höndum flokksstjóra úr Vinnuskóla Reykjanesbæjar og er frábært að gefa þeim tækifæri til að láta ljós sitt skína með þessum hætti. Dagskrá þeirra verður sniðin að yngstu kynslóðinni frá kl. 14-16 en að ungmennum frá kl. 16-18. Þessu til viðbótar verður hægt að fara á hestbak, fá andlitsmálningu, hoppa í hoppukastala og kaupa þjóðhátíðarnammi. Allt eins og það á að vera. Skemmtidagskráin er öllum að kostnaðarlausu.
Aðrir viðburðir og frítt í strætó
Að venju verður úrval kaffihlaðborða á ýmsum stöðum, auk þess sem ókeypis aðgangur er í Duus safnahús í tilefni dagsins en þar er m.a. nýopnuð einstaklega áhrifarík sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar.
Innanbæjarstrætó gengur samkvæmt laugardagsáætlun og frítt verður í strætó.