Kristín María snéri vörn í sókn með Discover Grindavik
Einhvers staðar segir að neyðin kenni naktri konu að spinna. Kristín María Birgisdóttir er kona og má segja að þetta orðatiltæki hafi átt vel við hana en henni var sagt upp starfi sínu hjá Grindavíkurbæ en sneri vörn í sókn má segja og hefur stofnað fyrirtækið Discover Grindavík. Hún vann að markaðs- og kynningarmálum fyrir Grindavíkurbæ, hefur öðlast mikla reynslu varðandi erlent ferðafólk og hyggst nýta þá reynslu til að þjóna þeim ferðamönnum sem vilja koma til Grindavíkur og sjá og heyra hvað gengið hefur á á undanförnum árum, hvort sem það eru erlendir ferðamenn eða Íslendingar.