HSS
HSS

Mannlíf

ÞJóðhátíðardegi fagnað í Vogum og Suðurnesjabæ
Mánudagur 16. júní 2025 kl. 13:24

ÞJóðhátíðardegi fagnað í Vogum og Suðurnesjabæ

Hátíðardagskrá vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní verður bæði í Sveitarfélaginu Vogum og Suðurnesjabæ.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á 17. júní í Vogum

Sveitarfélagið Vogar býður íbúum og gestum til fjölskylduvænnar hátíðar á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, með fjölbreyttri dagskrá sem nær bæði til menningar og skemmtunar fyrir alla aldurshópa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hátíðarhöldin hefjast í Tjarnarsal klukkan 14:00 með ávarpi bæjarstjóra. Þar á eftir, kl. 14:05, verða Menningarverðlaun sveitarfélagsins veitt og kl. 14:30 mun tónlistaratriði frá tónlistarskólanum gleðja gesti. Dagskránni í Tjarnarsal lýkur með töfrum þegar töframaðurinn Bjarni stígur á svið kl. 14:45.

Á útisvæði við Stóru-Vogaskóla verður líf og fjör fyrir börn og fjölskyldur. Frá kl. 14:00 til 15:00 verður hægt að kynnast VogaHESTUM og frá kl. 14:00 til 16:00 verða hoppukastalar, grjónapúðakast, axarkast og kajakar í boði.

Auk fjölbreyttrar dagskrár býður sveitarfélagið öllum gestum upp á kökur, kleinur og kaffi í Tjarnarsal.

Þjóðhátíðardegi fagnað með fjölskylduhátíð í Suðurnesjabæ

Í Suðurnesjabæ verður boðið til líflegs þjóðhátíðardags með fjölbreyttri dagskrá við Sandgerðisskóla þann 17. júní. Hátíðarhöldin hefjast kl. 13:00 og standa fram eftir degi, þar sem boðið verður upp á skemmtun fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin hefst með fánahyllingu og ávarpi fjallkonunnar, Hebu L. Guðmundsdóttur. Hátíðarræðu flytur Fanney D. Halldórsdóttir. Hljómsveitin The Unstoppable heldur tónleika og vinsælar persónur úr Latabæ láta einnig sjá sig. Þá mun Sirkus Íslands koma fram og boðið verður upp á hoppukastala, barnalest, andlitsmálningu og fleira. Sjoppa verður í umsjón Reynis og Víðis.

Klukkan 14:30 verður pylsugrill í boði Suðurnesjabæjar og félagar í Hestamannafélaginu Mána verða með hesta til að teymja undir börnum. Þá verður einnig nammikast úr körfubíl slökkviliðsins – til mikillar gleði fyrir yngstu gestina.

Byggðasafnið á Garðskaga verður opið frá kl. 10:00 til 17:00 með ókeypis aðgangi. Gestir í þjóðbúningum þjóðarinnar eru sérstaklega velkomnir og fána- og skrautvörur verða til sölu á svæðinu.

Fjölskylduvæn og fjörug hátíð í Suðurnesjabæ – allir velkomnir!