Grindvísk systrabörn gera það gott með Fram í fótboltanum
Skoruðu bæði í síðasta leik og voru valin leikmaður leiksins
Systrabörnin Sigurjón Rúnarsson og Una Rós Unnarsdóttir, eru knattspyrnufólk úr Grindavík og höfðu þar til fyrir þetta tímabil, alltaf leikið með uppeldisfélaginu. Mæður þeirra eru systurnar Ragnheiður Þóra og Petra Rós Ólafsdætur en þær hafa unnið mikið og gott sjálfboðastarf fyrir grindvíska knattspyrnu í gegnum tíðina.
Eftir erfitt fyrsta sumar eftir hamfarirnar í Grindavík, ákváðu frændsystkinin að nú væri rétti tímapunkturinn að skipta um umhverfi og vildu reyna sig í deild hinna bestu. Þau enduðu bæði á að semja við Fram og hafa verið að gera góða hluti, voru t.d. valin menn leiksins í síðasta leik auk þess sem þau skoruðu mark.
Una Rós er 23 ára gömul og fannst hentugur tímapunktur núna að reyna sig í efstu deild.
„Mér líður mjög vel hjá Fram, það er frábær aðstaða hér og það hefur verið tekið vel á móti mér. Mér fannst ég vera tilbúin að taka næsta skref á mínum ferli, vildi spila í efstu deild og get ekki verið annað en ánægð með gengi mitt til þessa. Við höfum búið í Hafnarfirði síðan við þurftum að rýma Grindavík og þar sem Grindavík var að sameinast Njarðvík þá fannst mér þetta vera réttur tímapunktur að prófa nýja hluti. Það var erfitt að kveðja mína gömlu liðsfélaga en ég er búin að fylgjast vel með þeim síðan í ég skipti, þetta eru auðvitað vinkonur mínar og ég reyni að mæta á leiki hjá þeim. Maður er náttúrulega gulur í hjartanu, það mun aldrei breytast.
Það er auðvitað einhver getumunur á milli Bestu- og Lengjudeildarinnar en Lengjudeildin er orðin mjög sterk, þess vegna var þetta kannski minna stökk en ég átti von á. Ég hef náð að aðlagast nokkuð fljótt og hef verið að spila vel. Ég hef byrjað alla leiki, skoraði mitt fyrst mark í síðasta leik og hef lagt upp fjögur. Ég spila venjulega á miðjunni en hef líka verið úti á kanti í sumar. Okkur hefur gengið vel, erum í 4-5. sæti eftir að hafa verið spáð falli svo þetta hefur verið gott sumar til þessa. Ég skrifaði undir tveggja ára samning, það er frábær aðstaða í Úlfljótsdalnum og ég kann mjög vel við mig hjá Fram,“ segir Una Rós.
Dalur draumanna
Sigurjón sem er fasteignasali á Allt fasteignum, var lengi búinn að stefna á efstu deild með Grindavík og eftir erfitt síðasta sumar, fann hann að kominn var tími á breytingar og gæti ekki verið ánægðari.
„Mér líður mjög vel hér í dal draumanna, Fram er frábær klúbbur með eina flottustu aðstöðu landsins, með frábært stjórnarfólk og ég hef verið mjög ánægður með þjálfarann, Rúnar Kristinsson. Ég var búinn að spila með mínum uppeldisklúbbi síðan ég byrjaði í fótbolta og eftir að hafa spilað síðast í efstu deild árið 2019, hefur markmið Grindavíkur alltaf verið að komast á nýjan leik í efstu deild. Það var markmiðið síðasta sumar og við vonuðum að stemningin frá körfunni hefði skilað sér að einhverju leyti til okkar en það náði aldrei að raungerast, við náðum aldrei upp almennilegri stemningu í Safamýrinni. Gengið var dapurt og ég fann það einhvern veginn síðasta sumar að nú væri kannski kominn tími á breytingar, þetta er erfiðasta tímabil sem ég hef tekið með Grindavík og reyndi virkilega á andlegu hliðina. Ég þurfti að komast í nýtt umhverfi og vildi líka reyna mig í efstu deildinni en ég er búinn að fylgjast vel með Grindavík og reyni að komast á leiki hjá þeim, Grindvíkingurinn verður aldrei tekinn úr mér.
Mér hefur gengið vel, náði strax að aðlagast og fékk hlutverk hjá Rúnari, sem ég er mjög hrifinn af sem þjálfara. Við erum að spila með þrjá hafsenta og ég er þar í miðjunni og hef verið ánægður með spilamennsku mína til þessa, ég hef byrjað alla leiki fyrir utan einn þar sem ég var tæpur vegna meiðsla. Gengi okkar hefur verið upp og niður, við ætlum okkur að enda í topp sex og erum komnir í 8-liða úrslit bikarsins. Það var auðvitað gaman að vera valinn maður leiksins í sigri okkar gegn FH, markið var bónus en mesta gleði fékk ég út úr því að við héldum hreinu, varnarmaðurinn lítur alltaf fyrst til þess.
Þetta var nú ekki planað hjá okkur frændsystkinunum, bara tilviljun að við skyldum bæði ganga til liðs við Fram. Skemmtileg tilviljun að við skyldum bæði skora í síðasta leik og vera valin leikmaður leiksins. Okkur líður báðum mjög vel hjá Fram, þetta hefur gengið vel og vonandi verður framhald á í sumar,“ sagði Sigurjón að lokum.