Nýr göngu- og hjólastígur upp á Vogastapa
Fyrsti áfangi í tengingu stígakerfa á Suðurnesjum
Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga hefur tekið fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi vegna nýs göngu- og hjólastígs sem mun liggja frá þéttbýlinu í Vogum og vestur upp á Vogastapa, að mislægum gatnamótum til Grindavíkur. Stígurinn verður um 3 kílómetra langur og er hluti af fyrsta áfanga í stærra verkefni sem miðar að því að tengja saman stígakerfi Voga, Reykjanesbæjar og Grindavíkur.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Voga 2008–2028 og einnig við vinnslutillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi sveitarfélagsins. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að leita umsagnar frá Minjastofnun Íslands og hefja samtal við Vegagerðina um framkvæmdirnar.
Jafnframt er lögð áhersla á áframhaldandi samstarf við Reykjanesbæ um stígatengingar milli sveitarfélaganna og að ræða við HS Veitur um möguleika á að leggja grunninnviði í stíginn í ljósi þeirra náttúruhamfara sem hafa haft áhrif á svæðið.