ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Isavia styrkir Landsbjörgu um 30 milljónir
Fimmtudagur 19. júní 2025 kl. 14:10

Isavia styrkir Landsbjörgu um 30 milljónir

Isavia ohf. og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa undirritað samning til næstu þriggja ára þar sem Isavia mun styrkja öflugt starf Landsbjargar um 30 milljóna króna . Með þessu samkomulagi er Styrktarsjóður Isavia og Slysavarnafélagsins Landsbjargar endurvakinn eftir að hafa legið í dvala síðan í heimsfaraldri. Sjóðurinn var stofnaður árið 2012 með það að markmiði að efla hópslysaviðbúnað í nágrenni flugvalla og fjölfarinna ferðmannastaða á Íslandi.

Það voru þeir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia ohf., og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Landsbjargar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Við hjá Isavia metum mikils okkar góða samstarf við Landsbjörgu og viljum áfram leggja okkar að mörkum til að efla það góða starf sem björgunarsveitirnar vinna um allt land,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við erum ánægð að vera búin að endurvekja styrktarsjóðinn því það skiptir okkur öll máli að hafa öflugar björgunarsveitir til taks þegar hætta steðjar að.“

„Það skiptir meginmáli að starf sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar eigi sér jafn öfluga bakhjarla og Isavia er og það er okkur mikið gleðiefni að Styrktarsjóðurinn skuli nú endurvakinn.“ Segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. „Net björgunarsveita er þéttriðið um allt land og afar mikilvægt að tryggja það net, því þegar einhverskonar vá verður, er lykilatriði að stutt sé í aðstoð vel þjálfaðs og reynds björgunarfólks með réttan búnað.“