Jarðskjálfti af stærð 3,4 í Móhálsadal
Jarðskjálfti af stærð 3,4 varð klukkan 22:26 í gærkvöldi í Móhálsadal, rétt vestan Krýsuvíkur á Reykjanesskaga. Samkvæmt Veðurstofu Íslands mældist skjálftinn á um 5,1 km dýpi og fannst víða á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.
Tugir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði, en síðast varð skjálfti af svipaðri stærð þann 9. mars síðastliðinn, þegar skjálfti af stærð 3,6 mældist á svipuðum slóðum.