ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Fimm ára samstarfsverkefni sveitarfélaga og ríkisstofnana á Suðurnesjum formlega lokið
Fimmtudagur 19. júní 2025 kl. 09:43

Fimm ára samstarfsverkefni sveitarfélaga og ríkisstofnana á Suðurnesjum formlega lokið

Lokaskýrsla Velferðarnets Suðurnesja var kynnt á fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar í síðustu viku af Eydísi Rós Ármannsdóttur, verkefnastjóra verkefnisins. Þar með lýkur formlega þessu umfangsmikla samstarfsverkefni sem staðið hefur yfir frá 2020.

Velferðarnet Suðurnesja hefur verið sameiginlegt átak sveitarfélaganna á Suðurnesjum og fjögurra ríkisstofnana sem veita beina þjónustu við íbúa: Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Lögreglustjórans, Sýslumannsins og Vinnumálastofnunar. Markmið verkefnisins var að efla og samræma þjónustu íbúa með áherslu á velferð og lífsgæði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grunnur að áframhaldandi samstarfi

Í skýrslunni kemur fram að með verkefninu hafi verið lagður sterkur grunnur að dýpri og þverfaglegri samvinnu milli stofnana og sveitarfélaga. Verkefnið hefur markað tímamót í samskiptum og samhæfingu þjónustuaðila og skapað tækifæri til framþróunar í velferðarþjónustu. Þessi þróun hefur m.a. byggst á samræmdri upplýsingagjöf, aukinni hæfni starfsmanna og tengslaneti um 2.500 starfsmanna á velferðarsviði á Suðurnesjum.

Vefurinn Velkomin til Suðurnesja

Eitt af flaggskipum verkefnisins er vefurinn Velkomin til Suðurnesja (sudurnes.is), sem ætlað er að vera fyrsta viðkomustaður nýrra íbúa á svæðinu. Þar eru veittar upplýsingar um níu lykilþemu, meðal annars húsnæðismál, börn og fjölskyldur, menntun, heilsu og samgöngur. Ráðið telur brýnt að halda áfram að kynna vefinn og efla markaðssetningu hans.

Ráðið lýsir yfir ánægju

Velferðarráð fagnar framlaginu og því sem áunnist hefur á þessum fimm árum. Sérstaklega var bent á mikilvægi þess að verkefnið hafi stuðlað að sjálfbærni í þjónustu á sviði félags-, mennta- og heilbrigðismála. Ráðið telur verkefnið hafa verið verðugt og vel heppnað framtak til eflingar tengsla og þjónustu í nærsamfélaginu.