Góð tilþrif hjá eldri pútturum í Reykjanesbæ
Meistaramót Púttklúbbs Suðurnesja hófst í gær og mættu tuttugu og níu til leiks. Leiknar verða 54 holur í karla- og kvennaflokki.
Eldri borgarar í Púttklúbbi Suðurnesja eru duglegir að pútta, inni um vetur í gömlu slökkviliðsstöðinni og svo á Mánaflöt í nágrenni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Víkurfréttir komu við á Mánaflöt í Reykjanesbæ og fylgdist með upphafi mótsins en púttarar sýndu góð tilþrif.
Ungmenni úr vinnuskóla Reykjanesbæjar hreinsuðu gangstíg á svæðinu á upphafsdegi mótsins og eldri borgarar voru ánægðir með krakkana.