Askja opnar senn starfsstöð að Njarðarbraut 11
Bílaumboðið Askja mun opna nýja og glæsilega starfsstöð að Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ á komandi mánuðum. Með nýju aðstöðunni verður boðið upp á sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir Mercedes-Benz atvinnu- og fólksbíla, smart, Kia og Honda.
„Við erum afar spennt fyrir opnun á nýrri starfsstöð í Reykjanesbæ en systurfélag okkar Dekkjahöllin hefur nú þegar opnað hjólbarðaþjónustu í húsinu.” segir Kristmann Freyr Dagsson, sölustjóri hjá Öskju. „Við erum með þessu að tengja saman nokkra lykilþætti í þjónustu við svæðið, sem eru sala nýrra og notaðra bíla, almenn þjónusta, innkallanir og viðgerðir.“
Samhliða þessum breytingum lýkur formlega farsælu samstarfi við K. Steinarsson ehf., sem hefur gegnt hlutverki umboðsaðila Öskju á svæðinu síðastliðin 14 ár. „Við hjá Öskju viljum þakka K. Steinarssyni kærlega fyrir frábært samstarf sem hefur einkennst af trausti, fagmennsku og góðum samskiptum í gegnum árin, og fyrir ómetanlegt framlag til þess að byggja upp sterka viðveru á Suðurnesjum,” bætir Kristmann við.
Í nýju starfsstöðinni mun öflugt teymi starfa og hefur Jón Halldór Eðvaldsson nú þegar verið ráðinn sölustjóri Öskju í Reykjanesbæ. Jón Halldór er Reyknesingum að góðu kunnur en hann hefur starfað við bílasölu á svæðinu í yfir tvo áratugi. Hann býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á þörfum viðskiptavina, ásamt því að vera í sterkum tengslum við samfélagið.
Askja mun á dögunum auglýsa lausar stöður á nýju starfsstöðinni.
Eins og fram hefur komið verður starfsstöðin staðsett í sama húsnæði og Dekkjahöllin sem opnaði nýverið á Njarðarbraut 11.
Lögð verður áhersla á persónulega ráðgjöf, faglega þjónustu og lausnir sem henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum á svæðinu.
Nánari upplýsingar um opnunardag og starfsemi verða kynntar á næstu vikum.