Keflavík úr leik í Mjólkurbikarnum eftir tap gegn Stjörnunni
Komust tvisvar yfir
Keflavík er úr leik í Mjólkurbikarnum en 8-liða úrsltin hófust í gær með tveimur leikjum. Keflavík mætti Stjörnunni á útivelli og þrátt fyrir að hafa tvisvar komist yfir í leiknum, dugði það ekki til sigurs og Stjarnan vann 4-2 eftir að hafa verið 3-2 yfir í hálfleik.
Eiður Orri Ragnarsson kom Keflvíkingum yfir á 15. mínútu en Stjarnan jafnaði á 26. mínútu. Ásgeir Páll Magnússon kom Keflvíkingum aftur yfir á 31. mínútu en Stjarnan svaraði með tveimur mörkum fyrir hálfleik. Þeir bættu svo fjórða markinu við í upphafi seinni hálfleiks og þar við sat.
Vestri vann Þór Akureyri í hinum leik gærkvöldsins og í kvöld mætast ÍBV og Valur, og Afturelding og Fram.