Grindvíkingar runnu á rassgatið í bleytunni í Grindavík
Segja má að fyrirsögn þessarar fréttar segi allt sem segja þarf um leik Grindvíkinga í dag á móti nýliðum Völsungs í Lengjudeildinni, á heimavelli sínum í Grindavík. Grindavík tapaði 2-4 og komu sum mörk Völsunga út frá gjöf Grindvíkinga eftir að þeir runnu á afturendann eða kikksuðu í bleytunni.
Grindavík átti fyrstu tvö færi leiksins en Völsungar skoruðu þvert á gang hans og bættu öðru marki við fyrir fyrir hálfleik. Grindvíkingar minnkuðu muninn með sjálfsmarki Völsunga á 68. mínútu og stuðningsfólk Grindavíkur lifnaði við. Adam var hins vegar ekki lengi í paradís, Völsungur skoraði þriðja markið á 70. mínútu. Allt stefndi í að það yrðu lokatölur en Ingi Þór Sigurðsson gaf Grindvíkingum líflínu með marki á 91. mínútu en aftur staldraði Adam ekki lengi við, Völsungur skoraði fjórða markið á 92. mínútu og 2-4 lokatölur leiksins.

